Fjárhagsáætlun Sveitarfélagsins Árborgar 2024 og þriggja ára áætlun 2025 – 2027



Fjárhagsáætlun Sveitarfélagsins Árborgar fyrir árið 2024 og þriggja ára áætlun fyrir tímabilið 2025 – 2027 var lögð fram í bæjarstjórn Árborgar til seinni umræðu miðvikudaginn 13. desember 2023. 

Fjárhagsáætlun ársins 2024 gerir ráð fyrir að rekstrarniðurstaða A- og B- hluta verði jákvæð um 34,8 millj.kr. og EBITDA verði 3,1 ma.kr. Rekstrarniðurstaða A hluta verði neikvæð um -0,869 millj kr. og EBITDA verði 1,7 ma.kr. Gert er ráð fyrir að í lok árs 2024 nemi eignir samtals 31,5 ma.kr.  

Veltufé frá rekstri í A- og B- hluta er áætlað 2,342 ma.kr árið 2024, 2,62 ma kr. árið 2025, 1,956 ma kr. árið 2026 og 2,064 ma kr. árið 2027. Veltufé frá rekstri í A- hluta er áætlað 860,5 millj kr. árið 2024. 

Framlegðarhlutfall er áætlað 16,1% fyrir árið 2024 sem er hækkun um 9,2% frá útkomuspá fyrir árið 2023. Framlegðarhlutfall er áætlað 16,6% fyrir árið 2025, 13,0% fyrir árið 2026 og 13,0% fyrir árið 2027. 

Fjárfestingar eru áætlaðar 1,649 ma.kr. árið 2024, 1,471 ma.kr árið 2025, 1,089 ma.kr árið 2026 og 1,7275 ma kr. árið 2027. 

Bæjarstjórn setti sér markmið um að ná tökum á fjármálum sveitarfélagsins. Þau markmið voru kynnt ásamt greiningu ráðgjafafyrirtækisins KPMG fyrir íbúum á opnum fundi miðvikudaginn 12. apríl sl. Þar var sett fram aðgerðaráætlun sem kallast Brú til betri vegar. Verkefnið „Brú til betri vegar“ miðar að því að tryggja sjálfbæran rekstur og sjálfbær fjármál Sveitarfélagsins Árborgar til framtíðar. Verkefnið er margþætt og flókið með snertifleti við alla starfsemi sveitarfélagsins, bæði í A- og B-hluta. Það byggir á margvíslegum forsendum er varða bæði innra og ytra rekstrarumhverfi. Verkefnið felst í aðgerðum til skemmri og lengri tíma, það byggir á öflugri samvinnu kjörinna fulltrúa, stjórnenda sveitarfélagsins, starfsfólks, íbúa, lánardrottna, eftirlitsaðila, ráðgjafa og annarra sem að verkefninu koma.   

Hjálagt er að finna frumvarp að fjárhagsáætlun Sveitarfélagsins Árborgar 2024 til 2027. 


Attachment



Attachments

Sveitarfélagið Árborg fjárhagsáætlun 2024-2027 seinni umræða