Sveitarfélagið Árborg gefur út nýjan skuldabréfaflokk ARBO 43 GSB 



Sveitarfélagið Árborg gefur út nýjan skuldabréfaflokk ARBO 43 GSB 

Sveitarfélagið Árborg hefur gefið út sjálfbærniskuldabréf (GBS) með auðkennið ARBO 43 GSB. Skuldabréfaflokkurinn er verðtryggður með jöfnum greiðslum afborgana og vaxta, á sex mánaða fresti og föstum 3,75% ársvöxtum. Lokagjalddagi er 22. september 2043. 

Seld hafa verið skuldabréf í flokknum að fjárhæð 500 m.kr. að nafnvirði. Skuldabréfin voru seld í lokuðu útboði á ávöxtunarkröfunni 3,95%. Skuldabréfin verða tekin til viðskipta á markað með sjálfbær skuldabréf hjá Nasdaq Iceland. 

Greiðslu- og uppgjörsdagur er fyrirhugaður föstudaginn 22. september 2023. 

Sveitarfélagið Árborg er fyrsti útgefandinn til að gefa út sjálfbærniskuldabréf hér á landi til fjármögnunar á  verkefnum sem hafa umhverfis og/eða félagslegan ávinning. Skuldabréfin eru gefin út í þeim tilgangi að fjármagna græn og/eða félagsleg verkefni í samræmi við Sjálfbærniumgjörð Árborgar. Nánari upplýsingar eru aðgengilegar á vefsíðu útgefanda: Sjálfbær fjármálaumgjörð 

Landsbankinn hf. hefur umsjón með útgáfu og sölu skuldabréfanna sem og töku þeirra til viðskipta á markað Nasdaq á Íslandi með sjálfbær skuldabréf. 

Nánari upplýsingar veita:  

Fjóla St. Kristinsdóttir, bæjarstjóri Sveitarfélagsins Árborgar, í síma 480 1900 eða fjolask@arborg.is 

Gunnar S. Tryggvason, Markaðsviðskipti Landsbankans, í síma 410 6709 eða gunnars@landsbankinn.is