Sveitarfélagið Árborg – Útboð á skuldabréfum 14. september 2023


Sveitarfélagið Árborg – Útboð á skuldabréfum 14. september 2023

Sveitarfélagið Árborg efnir til lokaðs útboðs á nýjum skuldabréfaflokk, ARBO 43 GSB, fimmtudaginn 14. september næstkomandi. Skuldabréfin eru gefin út í þeim tilgangi að fjármagna græn og/eða félagsleg verkefni í samræmi við Sjálfbærniumgjörð Árborgar.

Skuldabréfaflokkurinn er verðtryggður með jöfnum greiðslum afborgana og vaxta, á sex mánaða fresti og föstum 3,75% vöxtum. Lokagjalddagi er 22. september 2043. Árborg stefnir að því að taka tilboðum fyrir allt að 3.000 milljónir kr. að nafnvirði.

Skuldabréfin verða tekin til viðskipta á markað með sjálfbær skuldabréf hjá Nasdaq Iceland.

Útboðið verður með hollenskri aðferð, þ.e. öll samþykkt tilboð bjóðast fjárfestum á hæstu ávöxtunarkröfu sem verður tekið í flokknum. Sveitarfélagið Árborg áskilur sér rétt til að taka eða afþakka hvaða tilboði sem er í heild eða að hluta.

Markaðsviðskipti Landsbankans hafa umsjón með útboðinu og fjárfestar skulu skila tilboðum fyrir klukkan 16:00 fimmtudaginn 14. september 2023 á netfangið verdbrefamidlun@landsbankinn.is

Greiðslu- og uppgjörsdagur er fyrirhugaður föstudagurinn 22. september 2023.

Sveitarfélagið Árborg hefur sjálfbæra fjármálaumgjörð, sem samræmist alþjóðlegum viðmiðum Alþjóðasamtaka aðila á verðbréfamarkaði og hefur hlotið óháða vottun frá Sustainalytics, sem er leiðandi viðurkenndur vottunaraðili í sjálfbærum fjármálum á heimsvísu. Umgjörðin byggir á áætlunum sveitarfélagsins í umhverfisvænni og félagslegri uppbyggingu. Nánari upplýsingar eru aðgengilegar á vefsíðu útgefanda: Sjálfbær fjármálaumgjörð

Landsbankinn hf. hefur umsjón með útgáfu og sölu skuldabréfanna sem og töku þeirra til viðskipta á markað Nasdaq á Íslandi með sjálfbær skuldabréf.

Nánari upplýsingar veita:

Fjóla St. Kristinsdóttir, bæjarstjóri Sveitarfélagsins Árborgar, í síma 480 1900 eða fjolask@arborg.is

Gunnar S. Tryggvason, Markaðsviðskipti Landsbankans, í síma 410 6709 eða gunnars@landsbankinn.is