Marel hf. – Veiting kauprétta
Stjórn Marel hf. ákvað þann 12. febrúar 2019 að veita starfsmönnum kauprétti að allt að 3,75 milljónum hluta í félaginu.
Kaupréttarsamningunum er ætlað að samtvinna hagsmuni starfsmanna og félagsins til lengri tíma. Skilmálar eru í samræmi við kaupréttarkerfi sem samþykkt var á aðalfundi Marel hf. þann 2. mars 2017 í samræmi við starfskjarastefnu félagsins sem samþykkt var á sama fundi. Kaupréttirnir verða veittir meðlimum framkvæmdarstjórnar félagsins.
Meginefni kaupréttarsamninganna er eftirfarandi:
Heildarfjöldi útistandandi kauprétta sem Marel hf. hefur veitt starfsmönnum sínum nemur nú 15,7 milljónum hluta, sem nemur um 2,3% hlutafjár í félaginu, og er þá meðtalin þessi nýja úthlutun kauprétta. Heildarkostnaður félagsins vegna nýju samninganna á næstu þremur árum er áætlaður um 2 milljónir evra og er þá byggt á reiknilíkani Black-Scholes.
Nánari upplýsingar um kauprétti sem veittir eru framkvæmdastjórn Marel:
Nafn | Staða | Nýr kaupréttur | Áður úthlutaður, ónýttur kaupréttur | Hlutafjáreign innherja | Hlutafjáreign fjárhagslega tengdra aðila |
Árni Oddur Þórðarson | Forstjóri | 650.000 | 1.610.000 | 64.634 | 67.235 |
Linda Jónsdóttir | Fjármálastjóri | 425.000 | 1.430.000 | 182.500 | 0 |
Árni Sigurðsson | Framkvæmdastjóri stefnumótunar og þróunar | 425.000 | 1.430.000 | 0 | 100.000 |
Anton de Weerd | Framkvæmdastjóri alifuglaiðnaðar | 250.000 | 900.000 | 120.000 | 0 |
David Wilson | Framkvæmdastjóri kjötiðnaðar | 250.000 | 1.020.000 | 87.367 | 0 |
Sigurður Ólason | Framkvæmdastjóri fiskiðnaðar | 250.000 | 1.055.000 | 0 | 0 |
Jesper Hjortshøj | Framkvæmdastjóri frekari vinnslu | 250.000 | 450.000 | 0 | 0 |
Davíð Freyr Oddsson | Framkvæmdastjóri mannauðsmála | 250.000 | 1.055.000 | 135.000 | 0 |
Folkert Bölger | Framkvæmdastjóri framleiðslu- og aðfangastýringar | 250.000 | 250.000 | 17.862 | 0 |
Ulrika Lindgren | Framkvæmdastjóri þjónustu | 250.000 | 0 | 0 | 0 |
Einar Einarsson | Framkvæmdastjóri alþjóðamarkaða | 250.000 | 150.000 | 524.727 | 0 |
Viðar Erlingsson | Framkvæmdastjóri nýsköpunar og þróunar | 250.000 | 1.055.000 | 89.000 | 0 |
1 Kaupréttargengið er ákvarðað út frá lokagengi hlutabréfa Marel hf. á NASDAQ Iceland hf. þann 12. febrúar 2019, þ.e. ISK 444,00 á hlut, umreiknað með miðgengi Seðlabanka Íslands sama dag: EUR/ISK: 136,60