Marel hf. - Veiting kauprétta


Marel hf. – Veiting kauprétta

Stjórn Marel hf. ákvað þann 12. febrúar 2019 að veita starfsmönnum kauprétti að allt að 3,75 milljónum hluta í félaginu.

Kaupréttarsamningunum er ætlað að samtvinna hagsmuni starfsmanna og félagsins til lengri tíma. Skilmálar eru í samræmi við kaupréttarkerfi sem samþykkt var á aðalfundi Marel hf. þann 2. mars 2017 í samræmi við starfskjarastefnu félagsins sem samþykkt var á sama fundi. Kaupréttirnir verða veittir meðlimum framkvæmdarstjórnar félagsins.

Meginefni kaupréttarsamninganna er eftirfarandi:

  • Veittur er kaupréttur á hlutabréfum á grunnverðinu EUR 3,25 á hlut.1 Verðið skal leiðrétt fyrir arðgreiðslum sem kunna að verða ákveðnar frá útgáfudegi kaupréttanna.
  • Ávinnslutími (e. vesting time) er þrjú ár frá úthlutun. Heimilt verður að nýta áunna kauprétti tvisvar á ári, í apríl og október eftir birtingu ársfjórðungsuppgjörs. Fyrsta nýtingartímabil mun hefjast þegar eftir birtingu fyrsta ársfjórðungsuppgjörs árið 2022. Kaupréttarhafar geta frestað nýtingu á kaupréttum sínum til fyrsta ársfjórðungs ársins 2023, þegar samningar renna út og falla þá ónýttir kaupréttir niður á sama tíma.
  • Kaupréttarhafar þurfa að kaupa hlutabréf í Marel fyrir því sem nemur fjárhæð hreins hagnaðar af kaupréttunum þegar skattar hafa verið dregnir frá, og halda þeim bréfum til starfsloka hjá Marel.

Heildarfjöldi útistandandi kauprétta sem Marel hf. hefur veitt starfsmönnum sínum nemur nú 15,7 milljónum hluta, sem nemur um 2,3% hlutafjár í félaginu, og er þá meðtalin þessi nýja úthlutun kauprétta. Heildarkostnaður félagsins vegna nýju samninganna á næstu þremur árum er áætlaður um 2 milljónir evra og er þá byggt á reiknilíkani Black-Scholes.

Nánari upplýsingar um kauprétti sem veittir eru framkvæmdastjórn Marel:

NafnStaðaNýr kauprétturÁður úthlutaður, ónýttur kauprétturHlutafjáreign innherjaHlutafjáreign fjárhagslega tengdra aðila
Árni Oddur ÞórðarsonForstjóri650.000 1.610.000 64.634 67.235
      
Linda JónsdóttirFjármálastjóri425.000 1.430.000 182.500 0
      
Árni SigurðssonFramkvæmdastjóri
stefnumótunar og þróunar
425.000 1.430.000 100.000
      
Anton de WeerdFramkvæmdastjóri alifuglaiðnaðar250.000 900.000 120.000 0
      
David WilsonFramkvæmdastjóri kjötiðnaðar250.000 1.020.000 87.367 0
      
Sigurður ÓlasonFramkvæmdastjóri fiskiðnaðar250.000 1.055.000 0
      
Jesper HjortshøjFramkvæmdastjóri
frekari vinnslu
250.000 450.000 0
      
Davíð Freyr OddssonFramkvæmdastjóri mannauðsmála250.000 1.055.000 135.000 0
      
Folkert BölgerFramkvæmdastjóri framleiðslu- og aðfangastýringar250.000 250.000 17.862 0
      
Ulrika LindgrenFramkvæmdastjóri þjónustu250.000 0
      
Einar EinarssonFramkvæmdastjóri
alþjóðamarkaða
250.000150.000524.7270
Viðar ErlingssonFramkvæmdastjóri nýsköpunar og þróunar250.000 1.055.000 89.000 0





1 Kaupréttargengið er ákvarðað út frá lokagengi hlutabréfa Marel hf. á NASDAQ Iceland hf. þann 12. febrúar  2019, þ.e. ISK 444,00 á hlut, umreiknað með miðgengi Seðlabanka Íslands sama dag: EUR/ISK: 136,60