Aðalfundur Marel hf. verður haldinn í höfuðstöðvum félagsins að Austurhrauni 9, 210 Garðabæ, miðvikudaginn 6. mars nk., kl. 16:00.
Dagskrá:
Fundarstörf munu fara fram á ensku.
Þeim sem hyggjast gefa kost á sér til setu í stjórn félagsins er bent á að tilkynna skal framboð skriflega til stjórnar félagsins að minnsta kosti fimm sólarhringum fyrir upphaf aðalfundar, þ.e. fyrir kl. 16:00 föstudaginn 1. mars.
Hluthafar eiga rétt á að fá ákveðin mál tekin til meðferðar á hluthafafundi og skal kröfu þar um fylgja rökstuðningur eða drög að ályktun til stjórnar, sbr. grein 4.20 í samþykktum félagsins. Til þess að tillögur frá hluthöfum sem leggja á fyrir á fundinum verði teknar þar til umræðu verður að skila þeim til stjórnar félagsins eigi síðar en tíu dögum fyrir fundinn, þ.e. fyrir kl. 16:00 sunnudaginn 24. febrúar. Hafi hluthafar krafist þess að tiltekið mál eða ályktun verði tekin fyrir verða endanleg dagskrá og tillögur uppfærðar á vefsvæði félagsins eigi síðar en þremur dögum fyrir hluthafafundinn.
Á aðalfundarvef félagsins, www.marel.com/agm, er að finna allar frekari upplýsingar í tengslum við aðalfundinn, þ.m.t. frekari upplýsingar um rétt hluthafa til að fá mál sett á dagskrá hluthafafundar og leggja fram ályktunartillögur fyrir fundinn, drög að dagskrá fundarins, tillögur stjórnar félagsins, ársreikning félagsins fyrir árið 2018, upplýsingar um heildarfjölda hluta og atkvæðafjölda í félaginu m.v. 12. febrúar 2019, umboðsform auk upplýsinga um skjöl sem lögð verða fyrir fundinn.
Ekki er gert ráð fyrir að atkvæðagreiðslur á aðalfundinum verði skriflegar nema einhver fundarmanna krefjist þess eða fundarstjóri úrskurði um annað. Ekki verður hægt að greiða atkvæði með rafrænum hætti á fundinum. Óski hluthafi að taka fyrirfram þátt í atkvæðagreiðslu bréflega eru atkvæðaseðlar aðgengilegir á framangreindri vefsíðu aðalfundarins ásamt nánari upplýsingum um framkvæmd bréflegrar atkvæðagreiðslu. Í þeim tilfellum þurfa atkvæði að berast á skrifstofur félagsins að Austurhrauni 9, 210 Garðabæ fyrir kl. 15:30 á aðalfundardag 6. mars.
Endanleg dagskrá fundarins og tillögur verða gerðar aðgengilegar hluthöfum sjö dögum fyrir fundinn á framangreindum vef félagsins sem og á skrifstofu félagsins að Austurhrauni 9, 210 Garðabæ.
Hluthafi getur látið umboðsmann sækja aðalfund fyrir sína hönd. Umboðsmenn hluthafa skulu framvísa skriflegum umboðum við inngang. Atkvæðaseðlar og önnur gögn verða aðgengileg á fundarstað frá kl. 15:30 á aðalfundardegi.
Stjórn Marel hf.