Aðalfundur Marel hf. 2019


Aðalfundur Marel hf. verður haldinn í höfuðstöðvum félagsins að Austurhrauni 9, 210 Garðabæ, miðvikudaginn 6. mars nk., kl. 16:00.

Dagskrá:

  • Venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt grein 4.13 í samþykktum félagsins.
  • Skýrsla um framkvæmd starfskjarastefnu.
  • Tillaga um kaupréttarkerfi.
  • Tillaga um lækkun hlutafjár.
    • Lækkun á eigin hlutum félagsins vegna undirbúnings mögulegrar tvíhliða skráningar félagsins.
  • Breytingar á samþykktum félagsins:
    • Grein 15.1 – heimild stjórnar til útgáfu nýrra hlutabréfa í tengslum við kaupréttar­samninga starfsmanna að nafnverði allt að kr. 35.000.000, endurnýjuð til fimm ára;
    • Grein 15.2. – heimild stjórnar til útgáfu nýrra hlutabréfa í tengslum við möguleg fyrirtækjakaup félagsins að nafnverði allt að kr. 100.000.000, endurnýjuð til fimm ára;
    • Nýrri grein 15.3. verði bætt við samþykktir félagsins þess efnis að stjórn félagsins hafi heimild til útgáfu nýrra hlutabréfa að nafnverði allt að kr. 100.000.000 í tengslum við mögulega tvíhliða skráningu félagsins. Hluthafar falli frá forkaupsrétti vegna útgáfunnar. 
  • Tillaga um að heimila félaginu að kaupa eigin hlutabréf.
  • Önnur mál, löglega borin fram.

Fundarstörf munu fara fram á ensku.

Þeim sem hyggjast gefa kost á sér til setu í stjórn félagsins er bent á að tilkynna skal framboð  skriflega til stjórnar félagsins að minnsta kosti fimm sólarhringum fyrir upphaf aðalfundar, þ.e. fyrir kl. 16:00 föstudaginn 1. mars.

Hluthafar eiga rétt á að fá ákveðin mál tekin til meðferðar á hluthafafundi og skal kröfu þar um fylgja rökstuðningur eða drög að ályktun til stjórnar, sbr. grein 4.20 í samþykktum félagsins. Til þess að tillögur frá hluthöfum sem leggja á fyrir á fundinum verði teknar þar til umræðu verður að skila þeim til stjórnar félagsins eigi síðar en tíu dögum fyrir fundinn, þ.e. fyrir kl. 16:00 sunnudaginn 24. febrúar. Hafi hluthafar krafist þess að tiltekið mál eða ályktun verði tekin fyrir verða endanleg dagskrá og tillögur uppfærðar á vefsvæði félagsins eigi síðar en þremur dögum fyrir hluthafafundinn.

Á aðalfundarvef félagsins, www.marel.com/agm, er að finna allar frekari upplýsingar í tengslum við aðal­fundinn, þ.m.t. frekari upplýsingar um rétt hluthafa til að fá mál sett á dagskrá hluthafafundar og leggja fram ályktunartillögur fyrir fundinn, drög að dagskrá fundarins, tillögur stjórnar félagsins, ársreikning félagsins fyrir árið 2018, upplýsingar um heildarfjölda hluta og atkvæðafjölda í félaginu m.v. 12. febrúar 2019, umboðsform auk upplýsinga um skjöl sem lögð verða fyrir fundinn.

Ekki er gert ráð fyrir að atkvæðagreiðslur á aðalfundinum verði skriflegar nema einhver fundarmanna krefjist þess eða fundarstjóri úrskurði um annað. Ekki verður hægt að greiða atkvæði með rafrænum hætti á fundinum. Óski hluthafi að taka fyrirfram þátt í atkvæðagreiðslu bréflega eru atkvæðaseðlar aðgengilegir á framangreindri vefsíðu aðalfundarins ásamt nánari upplýsingum um framkvæmd bréflegrar atkvæða­greiðslu. Í þeim tilfellum þurfa atkvæði að berast á skrifstofur félagsins að Austurhrauni 9, 210 Garðabæ fyrir kl. 15:30 á aðalfundardag 6. mars.

Endanleg dagskrá fundarins og tillögur verða gerðar aðgengilegar hluthöfum sjö dögum fyrir fundinn á framangreindum vef félagsins sem og á skrifstofu félagsins að Austurhrauni 9, 210 Garðabæ.

Hluthafi getur látið umboðsmann sækja aðalfund fyrir sína hönd. Umboðsmenn hluthafa skulu framvísa skriflegum umboðum við inngang. Atkvæðaseðlar og önnur gögn verða aðgengileg á fundarstað frá kl. 15:30 á aðalfundardegi.

Stjórn Marel hf.