VÍS: Samsett hlutfall og ávöxtun fjáreigna í september 2018


Samsett hlutfall í september var 90,9% en það var 101,2% á sama tíma í fyrra. Samsett hlutfall það sem af er ári er 96,9% og samsett hlutfall síðustu 12 mánaða er 96,7%.

Nafnhækkun fjárfestingaeigna var 0,0% í september en nafnhækkun frá áramótum er 5,4%.

VÍS greiddi viðskiptavinum sínum tæplega 1,4 milljarð króna í tjónabætur í september og hefur greitt viðskiptavinum tæpa 11,5 milljarða króna í tjónabætur það sem af er ári.

*Samsett hlutfall er tjónakostnaður, endurtryggingakostnaður og rekstrarkostnaður sem hlutfall af iðgjöldum 
**Hafa ber í huga að tjónakostnaður tryggingafélaga getur sveiflast mjög á milli mánaða

Nánari upplýsingar veitir Andri Ólafsson samskiptastjóri í síma 660-5105.