ÚTBOÐ ÓVERÐTRYGGÐRA RÍKISBRÉFA RIKB 22 1026


Föstudaginn 21. september kl. 11:00 fer fram útboð hjá Lánamálum ríkisins með tilboðsfyrirkomulagi.

Boðin verða til sölu óverðtryggð bréf í flokknum RIKB 22 1026. Heildarfjárhæð samþykktra tilboða verður tilkynnt að loknu útboði.

Lánamál ríkisins áskilja sér rétt f.h. ríkissjóðs til að samþykkja öll tilboð sem berast, að hluta eða hafna þeim öllum. Einungis aðalmiðlurum ríkisverðbréfa er heimilt að gera tilboð í útboðinu en þeir annast einnig tilboðsgerð fyrir fjárfesta. Lágmark hvers tilboðs er ein milljón króna að nafnvirði.

Útboðinu verður þannig háttað að öll samþykkt tilboð bjóðast aðalmiðlurum á sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ræður söluverðinu. Að öðru leyti er vísað í útboðsskilmála sem fylgja þessari frétt.

Eftir að niðurstöður útboðs ríkisbréfa liggja fyrir munu Lánamál ríkisins bjóða jafnvirði 10%, reiknuð af nafnverði þess sem selt var í útboðinu, til aðalmiðlara á söluverði samþykktra tilboða allt til kl. 14:00 þriðjudaginn 25. september 2018. Hver aðalmiðlari sem á samþykkt tilboð í undangengnu útboði öðlast kauprétt í hlutfalli af keyptu magni.

Greiðslu- og uppgjörsdagur er miðvikudagurinn 26. september 2018.

Nánari upplýsingar veitir Oddgeir Gunnarsson, Lánamálum ríkisins, í síma 569 9635.

Viðhengi


Attachments

Frett_19.sep.2018 Utbodsskilmalar.21.sep_2018