Í viku 37 keyptu Sjóvá-Almennar tryggingar hf. 2.076.264 eigin hluti að kaupverði 28.402.167 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir:
Vika | Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð (gengi) | Kaupverð (kr.) |
37 | 10.9.2018 | 11:15:43 | 1.000.000 | 13,78 | 13.780.000 |
37 | 11.9.2018 | 09:38:23 | 1.000.000 | 13,56 | 13.560.000 |
37 | 12.9.2018 | 13:41:52 | 19.066 | 13,50 | 257.391 |
37 | 14.9.2018 | 10:47:21 | 19.066 | 14,07 | 268.259 |
37 | 14.9.2018 | 14:00:14 | 27.000 | 14,07 | 379.890 |
37 | 14.9.2018 | 14:03:08 | 11.132 | 14,07 | 156.627 |
Samtals | 2.076.264 | 28.402.167 |
Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 11. júní 2018.
Sjóvá átti 25.168.888 eigin hluti fyrir viðskiptin og eiga að þeim loknum 27.245.152 eigin hluti eða sem nemur 1,91% af útgefnum hlutum í félaginu.
Sjóvá hefur keypt samtals 27.245.152 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 1,91% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra 415.394.996 kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 35.620.429 hlutum eða sem nemur 2,50% af útgefnum hlutum í félaginu. Heildarkaupverð má þó ekki vera hærra en 550.000.000 kr. Endurkaupaáætlunin er í gildi fram að aðalfundi félagsins 2019, en þó aldrei lengur en til 8. mars 2019, nema skilyrði um hámarkskaup verði uppfyllt fyrir þann tíma.
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við VIII. kafla laga um hlutafélög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð um innherjaupplýsingar og markaðssvik nr. 630/2005, sem ber heitið „Viðskipti með eigin bréf í endurkaupaáætlunum og verðjöfnun fjármálagerninga.“
Nánari upplýsingar veitir:
Sigríður Vala Halldórsdóttir, fjárfestatengill, s. 440-2000 eða fjarfestar@sjova.is