Niðurstöður viðbótarútgáfu RIKB 22 1026


Samkvæmt 5. grein í skilmálum um útboð ríkisbréfa, sem haldið var 7. september stóð aðalmiðlurum til boða að kaupa 10% af andvirði þess sem selt var í útboðinu á söluverði samþykktra tilboða. Að þessu sinni nýttu aðalmiðlarar sér ekki kaupréttinn. Heildarstærð eftir útboðið í RIKB 22 1026 er nú 87.532.800.000 kr. að nafnvirði.  Uppgjör er 12. september 2018.