SKIPTIÚTBOÐ ÓVERÐTRYGGÐRA RÍKISBRÉFA RIKB 20 0205 OG RIKB 28 1115 FYRIR RIKB 19 0226


Föstudaginn 6. júlí kl. 11:00 fer fram útboð hjá Lánamálum ríkisins með tilboðsfyrirkomulagi.

Boðin verða til sölu óverðtryggð bréf í flokkunum RIKB 20 0205 og RIKB 28 1115. Heildarfjárhæð samþykktra tilboða verður tilkynnt að loknu útboði.

Athugið að aðeins er hægt að kaupa bréf í RIKB 20 0205 og í RIKB 28 1115 með sölu á RIKB 19 0226, sem fellur á gjalddaga 26. febrúar 2019. Lánamál ríkisins kaupa RIKB 19 0226 á fyrirfram ákveðnu verði þ.e. hreina verðinu 102,55 (105,7863014 með áföllnum vöxtum m.v. 100 kr. nafnverðseiningu) m.v. uppgjör 11. júlí 2018. Til skýringar þá jafngildir verðið 4,48% í ávöxtunarkröfu. Andvirði bréfanna ásamt áföllnum vöxtum kemur þá sem greiðsla fyrir kaupum á nýjum bréfum.

Lánamál ríkisins áskilja sér rétt f.h. ríkissjóðs til að samþykkja öll tilboð sem berast, að hluta eða hafna þeim öllum. Einungis aðalmiðlurum ríkisverðbréfa er heimilt að gera tilboð í útboðinu en þeir annast einnig tilboðsgerð fyrir fjárfesta. Lágmark hvers tilboðs er ein milljón króna að nafnvirði.

Útboðinu verður þannig háttað að öll samþykkt tilboð bjóðast aðalmiðlurum á sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ræður söluverðinu. Að öðru leyti er vísað í útboðsskilmála sem fylgja þessari frétt.

Greiðslu- og uppgjörsdagur er miðvikudagurinn 11. júlí 2018.

Nánari upplýsingar veitir Laufey Birna Ómarsdóttir, Lánamálum ríkisins, í síma 569 9631.

Viðhengi


Attachments

Frett 4 juli.2018 Utbodsskilmalar.4.juli 2018