Fjarskipti hf. : Endurfjármögnun Fjarskipta hf.


Fjarskipti hf. hefur endursamið við Landsbankann hf. um langtímafjármögnun að fjárhæð 5 milljarðar króna.

Fjármögnunin felur annars vegar í sér lán að fjárhæð 4.500 milljónir króna, sem meðal annars mun nýtt til uppgreiðslu eldri lána félagsins, og hins vegar lánalínu að fjárhæð 500 milljónir króna.

Bæði lán byggja sem fyrr á vaxtakjörum með grunni í REIBOR vöxtum en nú með marktækt hagstæðara álagi sem endurspeglar efnahagslegan styrk félagsins.  Viðskiptakjör eru að öðru leyti trúnaðarmál á milli aðila. 

Lánasamningurinn er til 7 ára, með lokagjalddaga árið 2022, en endursemja má um álag eftir þrjú ár. Lánalínan gildir frá undirritun í dag, 16. júní 2015, til sama dags árið 2020. 

 

Nánari upplýsingar:
Gunnhildur Ásta Guðmundsdóttir, fjarfestatengsl@vodafone.is, sími: 669 9151