Össur - Ársuppgjör 2010


Fréttatilkynning frá Össuri hf. nr. 01/2011
Reykjavík, 7. febrúar 2011

 

AFBRAGÐS SÖLUVÖXTUR

Sala - Söluvöxtur var mjög góður eða 9% mælt í staðbundinni mynt. Góður vöxtur í bæði spelkum og stuðningsvörum og stoðtækjum hefur jákvæð áhrif á söluna. Salan nam alls 359 milljónum Bandaríkjadala á síðasta ári samanborið við 331 milljón dala árið 2009. Sala á spelkum og stuðningsvörum var góð og jókst jafnt og þétt yfir árið og var söluvöxturinn 12%, mælt í staðbundinni mynt. Sala á stoðtækjum var einnig góð og jókst um 8%, mælt í staðbundinni mynt.

 

Arðsemi - Össur sýnir áfram stöðuga arðsemi. EBITDA framlegð nam 74 milljónum Bandaríkjadala eða 21% af sölu. Framlegð var 223 milljónir Bandaríkjadala eða 62% af sölu. Hagnaður á síðasta ári nam 35 milljónum Bandaríkjadala sem er 10% af sölu samanborið við 23 milljónir árið 2009 og 7% af sölu. Góður vöxtur í sölu er megin ástæða aukins hagnaðar.

 

Jón Sigurðsson, forstjóri:

"Heilt yfir eru niðurstöður ársins mjög ánægjulegar. Margar nýjar vörur voru settar á markað sem voru mikilvægar fyrir árangur okkar á liðnu ári. Við kynntum spennandi nýjungar í hefðbundnum vöruflokkum, bionic vörur eins og PROPRIO FOOT sem og nýjar spelkur og stuðningsvörur. Góður árangur í stoðtækjum, bæði í Evrópu og í Bandaríkjunum styður góðan söluvöxt í stoðtækjunum á árinu. Árangur í sölu á spelkum og stuðningsvörum í Bandaríkjunum er sérstaklega ánægjulegur og staðfestir styrkleika okkar á þessum markaði."

 

Helstu áfangar á árinu:

  • Nýjar vörur - Margar nýjar vörur voru kynntar á markaðnum á árinu 2010. Alls voru 22 nýjar vörur kynntar og þar með talinn PROPRIO FOOT sem er önnur varan í Bionic vörulínu félagsins. Nýjum spelkum og stuðningsvörum, eins og Miami Lumbar og Rebound Walker, hefur verið vel tekið, en þessar nýju vörur hafa jákvæð áhrif á söluvöxt.   
  • Fjárfesting í sölu- og dreifikerfi - Miklar breytingar á sölu- og dreifikerfi voru gerðar árið 2009 í Bandaríkjunum, en þessar breytingar hafa skilað góðum árangri á árinu 2010. Fjárfestingar í dreifiaðilum og víðtækara sölukerfi hafa skilað góðum vexti í sölu og samhliða hafa margar nýjar spelkur og stuðningsvörur verið kynntar. Þessir þættir hafa átt stóran þátt í þeim árangri sem náðst hefur og vöxtur í sölu hefur verið umfram áætlaðan markaðsvöxt í Bandaríkjunum.

 

Áætlun 2011 - Fyrir árið 2011 gera stjórnendur ráð fyrir innri söluvexti á bilinu 4-6%, mælt í staðbundinni mynt og að EBITDA leiðrétt fyrir einskiptis tekjum og kostnaði verði á bilinu 20-21% fyrir árið í heild.

 

 

Símafundur þriðjudaginn 8. febrúar kl. 11:00

 

Á morgun, þriðjudaginn 8. febrúar 2011, verður haldinn símafundur fyrir fjárfesta, hluthafa og aðra markaðsaðila þar sem farið verður yfir niðurstöður fjórða ársfjórðungs og ársins 2010. Fundurinn hefst kl. 11:00 GMT / 12:00 CET / 6:00 EST. Á fundinum munu þeir Jón Sigurðsson, forstjóri, og Hjörleifur Pálsson, fjármálastjóri, kynna afkomu félagsins og svara spurningum. Fundurinn fer fram á ensku og verður hægt að fylgast með honum á netinu á slóðinni www.ossur.com/investors  

 

Símanúmer til að taka þátt í fundinum eru:
Evrópa: + 44 (0) 20 3043 2436 eða
+46(0)8 505 598 53
Bandaríkin: +1 866 458 40 87
Ísland: 800 8660

 

 

Nánari upplýsingar:

 

Jón Sigurðsson, forstjóri sími: 515-1300
Hjörleifur Pálsson, fjármálastjóri sími: 515-1300
Sigurborg Arnarsdóttir, fjárfestatengill sími: 664-1044

 

 

 

Vinsamlega athugið að þetta yfirlit nær aðeins yfir helstu þætti uppgjörsins.
Tilkynningu í fullri lengd á ensku er að finna á www.ossur.com/investors

 

 


Attachments

Ossur Financial Statements 31.12.2010 Ossur Press Release Q4 2010 English Q4 2010 Investor Presentation