Niðurstaða í útboði óverðtryggðra og verðtryggðra ríkisbréfa RIKB 12 0824 og RIKS 21 0414


Útboð á óverðtryggðum flokki ríkisbréfa, RIKB 12 0824 og verðtryggðum flokki
RIKS 21 0414 fór fram hjá Lánamálum ríkisins kl. 11:00 í dag. Útboðinu var
þannig háttað að öll samþykkt tilboð buðust á sama verði. Lægsta samþykkta verð
(hæsta ávöxtunarkrafa) ákvarðaði söluverðið. 


Helstu niðurstöður útboðsins voru þessar:

RIKB 12 0824:
Alls bárust 17 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 7.916 m.kr. að nafnverði. 15
tilboðum var tekið fyrir 7.116 m.kr. að nafnverði á söluverðinu 100,27 (4,10%
ávöxtunarkröfu). 

RIKS 21 0414:
Alls bárust 22 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 5.872 m.kr. að nafnverði. 21
tilboði var tekið fyrir 5.772 m.kr. að nafnverði á söluverðinu 111,70 (2,52%
ávöxtunarkröfu). 


Ennfremur býðst aðalmiðlurum að kaupa 10% af nafnverði þess sem selt var í
útboðinu á söluverði samþykktra tilboða allt til kl. 14:00 þriðjudaginn 14.
september. Hver aðalmiðlari sem á samþykkt tilboð í undangengnu útboði öðlast
kauprétt í hlutfalli af keyptu magni. Greiðslu- og uppgjörsdagur fyrir þessi
viðskipti er 15. september 2010.

Attachments

nidurstodurrikb_riks_100910.pdf