Skipti selja Sirius IT


Skipti hf. hafa selt upplýsingatæknifyrirtækið Sirius IT sem er með starfsemi í
Danmörku, Noregi og Svíþjóð. Kaupandi er norska upplýsingafyrirtækið Visma.
Kaupverð er trúnaðarmál en með sölunni mun heildarhagnaður Skipta vegna
fjárfestingarinnar í Sirius IT nema um 5,5 milljörðum íslenskra króna. Greitt
er fyrir hlutinn með reiðufé. Skipti mun í kjölfar sölunnar greiða skuldir
niður hraðar en áætlað var og munu skuldir Skiptasamstæðunnar lækka um alls 8,7
milljarða króna við söluna á Sirius IT. 

Í nóvember 2006 stofnaði Skipti Sirius IT í samvinnu við lykilstjórnendur, til
að kaupa þann hluta af starfsemi finnska upplýsingatæknifyrirtækisins
TietoEnator sem einkum sinnir opinberum aðilum. Rekstur Sirius hefur gengið vel
og fyrirtækið skilað góðri afkomu. Á seinasta ári námu tekjur félagsins 435
milljónum danskra króna, sem nemur um 9,1 milljarði íslenskra króna.
Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði (EBITDA) var 66 milljónir
danskra króna, um 1,4 milljarðar íslenskra króna. Visma, sem nú kaupir Sirius
IT, hefur verið samstarfsaðili fyrirtækisins  í þróun lausna fyrir
lyfsölumarkað sem hafa gengið afar vel. 

Brynjólfur Bjarnason, forstjóri Skipta: „Sirius IT hefur reynst afar farsæl
fjárfesting fyrir Skipti. Á rúmum þremur árum hefur fyrirtækið náð mjög góðri
stöðu á norrænum upplýsingatæknimarkaði. Starfsfólk og stjórnendur hafa unnið
frábært starf og gert fyrirtækið að því sem það er í dag. Það er ljóst að
aðstæður hafa breyst hjá Skiptum, við leggjum höfuðáherslu á kjarnastarfsemi
fyrirtækisins, fjarskipti og samtvinnun fjarskipta og upplýsingatækni á
heimamarkaði okkar, Íslandi. Visma er í mjög góðri stöðu til að halda áfram að
þróa Sirius IT sem fyrirtæki, í samvinnu við stjórnendur og starfsfólk.
Söluverðið er mjög ásættanlegt og það er jákvætt að hagnast um 5,5 milljarða
króna af erlendri fjárfestingu á þessum tímum. Við munum nýta þá fjármuni sem
fást við söluna til að styrkja fjárhagsstöðu Skipta og greiða niður skuldir
hraðar en áformað var.“