Tvíhliða gjaldmiðlaskiptasamningur milli Seðlabanka Kína og Seðlabanka Íslands


Skrifað var undir tvíhliða gjaldmiðlaskiptasamning á milli Seðlabanka Kína og
Seðlabanka Íslands hinn 9. júní 2010. Fjárhæð samningsins er 66 milljarðar
króna eða 3,5 milljarðar kínverskra júan. Samningurinn gildir í þrjú ár og hægt
verður að framlengja hann að gefnu samþykki beggja aðila. 

Nánari upplýsingar veitir Már Guðmundsson seðlabankastjóri í síma 569 9600.