- Havila Shipping ASA - Beiðni um töku skuldabréfa úr viðskiptum samþykkt


NASDAQ OMX Iceland hf. (Kauphöllin) hefur ákveðið að verða við beiðni Havila
Shipping ASA  (Havila, félagið) um töku skuldabréfa félagsins (HAVI 05 1) úr
viðskiptum þar sem félagið hefur keypt öll útgefin skuldabréf í flokknum. 
Skuldabréf Havila verða tekin úr viðskiptum við lok viðskipta þann 2.nóvember
2009.