Vegna fjölmiðlaumræðu um hugsanlega aðkomu erlendra aðila að Marel Food Systems


Marel Food Systems hefur átt í óformlegum viðræðum við erlenda aðila; banka,
fjárfestingarsjóði og stærri iðnfyrirtæki um hugsanlega aðkomu þeirra að
hluthafahópi Marels. Viðræður hafa verið að frumkvæði erlendu aðilanna og hafa
ekki farið á formlegt stig. 

Stjórn Marel Food Systems hefur samþykkt að skoða tvíhliða skráningu hlutabréfa
félagsins í Amsterdam eða Skandinavíu til viðbótar við skráningu hlutabréfanna
í Nasdaq OMX á Íslandi með það að markmiði að auka seljanleika, bæta verðmyndun
og auðvelda aðkomu erlendra aðila að félaginu. Stærstu hluthafar Marel Food
Systems hafa lýst því yfir að þeir líti á hlutafjáreign sína sem
langtímafjárfestingu og framundan sé tímabil samþættingar þar sem hin eiginlegu
hluthafaverðmæti verði til.