Auglýsing um útboð ríkisbréfa RIKB 10 1210, RIKB 13 0517 og RIKB 19 0226


Föstudaginn 20. mars kl. 14:00 fer fram útboð í þremur flokkum ríkisbréfa með
tilboðsfyrirkomulagi hjá Seðlabanka Íslands. 

Heildarfjárhæð þessa útboðs verður allt að 20.000 milljónum króna samtals að
nafnverði í RIKB 10 1210, RIKB 13 0517 og RIKB 19 0226. 

Seðlabankinn áskilur sér rétt f.h. ríkissjóðs til að samþykkja öll tilboð sem
berast, hluta eða hafna þeim öllum.  Einungis aðalmiðlurum ríkisskuldabréfa er
heimilt að gera tilboð í útboðinu en þeir annast einnig tilboðsgerð fyrir
fjárfesta. Lágmark hvers tilboðs er ein milljón króna að nafnvirði. 

Útboðið verður þannig háttað að öll samþykkt tilboð bjóðast aðalmiðlurum á sama
verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ræður söluverðinu. Að öðru
leyti er vísað í útboðsskilmála sem fylgja þessari frétt. 

Greiðslu- og uppgjörsdagur er miðvikudaginn 25. mars 2009.

Í þessu útboði óskar Seðlabankinn fyrir hönd ríkissjóðs eftir kauptilboðum í
eftirfarandi flokka ríkisverðbréfa: 

Flokkur	          
RIKB 10 1210

Lokagjalddagi
10.12.2010

Útistandandi fjárhæð
19.488 m.kr.

Lánstími
1,7 ár

Flokkur
RIKB 13 0517

Lokagjalddagi
17.5.2013	 

Útistandandi fjárhæð
35.451 m.kr.

Lánstími
4,2 ár

Flokkur
RIKB 19 0226

Lokagjalddagi
26.2.2019	 

Útistandandi fjárhæð
53.592 m.kr.

Lánstími
9,9  ár

Eftir að niðurstöður útboðs ríkisbréfa liggja fyrir mun Seðlabankinn f.h.
ríkissjóðs bjóða jafnvirði 10%, reiknuð af nafnverði þess sem selt var í
útboðinu, til aðalmiðlara á söluverði samþykktra tilboða allt til kl. 14:00
þriðjudaginn 24. mars.  Hver aðalmiðlari sem á samþykkt tilboð í undangengnu
útboði öðlast kauprétt í hlutfalli af keyptu magni. Greiðslu- og uppgjörsdagur
fyrir þessi viðskipti er 25. mars 2009. 

Nánari upplýsingar veitir Oddgeir Gunnarsson, lánamálum ríkisins á alþjóða- og
markaðssviði Seðlabanka Íslands, í síma 569 9633.

Attachments

skilmalar17mar.pdf bloom17mar.pdf