Útgáfa ríkisbréfa og innstæðubréfa Seðlabanka Íslands


Í dag tilkynnti ríkisstjórnin viðbótarútgáfu ríkisbréfa á innlendum markaði á
grundvelli heimildar sem samþykkt var á Alþingi fyrir þinghlé í lok maí. Gefin
verða út ríkisbréf í flokkum RIKB 08 1212, RIKB 09 0612 og RIKB 10 0317 fyrir
samtals allt að 75 milljörðum króna. Nánari upplýsingar um útgáfuna verða
birtar á næstu dögum. 

Þá hefur bankastjórn Seðlabanka Íslands ákveðið að útgáfu inn¬stæðubréfa verði
fram haldið þegar bréfin sem bankinn gaf út í mars sl. falla í gjalddaga í
september n.k. Ákvarðanir um útgáfu innstæðubréfa á næsta ári verða teknar með
hliðsjón af skilyrðum á markaði þegar þar að kemur. 

Nánari upplýsingar veitir Sturla Pálsson framkvæmdastjóri alþjóða- og
markaðssviðs Seðlabankans í síma 569-9600.