- Ársreikningur 2007


Fréttatilkynning, vegna framlagningar ársreiknings Vopnafjarðarhrepps 
fyrir árið 2007.

Ársreikningur Vopnafjarðarhrepps fyrir árið 2007 var lagður fram til fyrri
umræðu í hreppsnefnd Vopnafjarðarhrepps miðvikudaginn 14. maí 2007.    Samkvæmt
sveitarstjórnarlögum skal fjalla um ársreikninginn á tveimur fundum í
sveitarstjórn, síðari umræða verður um ársreikninginn á hreppsnefndarfundi
fimmtudaginn 22. maí nk. 

Ársreikningur Vopnafjarðarhrepps fyrir árið 2007 hefur að geyma ársreikning
fyrir þær rekstrareiningar, sem falla undir A-hluta starfsemi sveitarfélagsins
og samantekinn ársreikning fyrir alla starfsemi þess þ.e. A-og B- hluta sbr.
60. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998. 
Til A-hluta þ.e. sveitarsjóðs, telst starfsemi sem að hluta eða öllu leyti er
fjármögnuð með skatttekjum.   Hér er um að ræða aðalsjóð, en auk hans eru
eignasjóður og þjónustumiðstöð Vopnafjarðarhrepps í A-hluta.   Til B-hluta
teljast fjárhagslega sjálfstæð fyrirtæki sem eru í eigu sveitarfélagsins, en
rekstur þessara fyrirtækja er fjarmagnaður með þjónustutekjum.   Fyrirtæki sem
falla undir B-hluta starfsemi sveitarfélagsins eru Hafnarsjóður, vatnsveita,
Fráveita, Félagslegar íbúðir, Leiguíbúðir, Félagsheimilið, Lyfsala, Skiphólmi
ehf. og Arnarvatn ehf. 

Ársreikningurinn er gerður gerður samkvæmt kostnaðarverðsreglu og í samræmi við
sveitarstjórnarlög, lög um ársreikninga nr. 144/1994, reglugerð um bókhald og
ársreikninga sveitarfélaga nr. 944/2000 og auglýsingar félagsmálaráðuneytisins
um reikningsskil sveitarfélaga.   Ársreikningurinn byggir í meginatriðum á sömu
reikningsskilaaðferðum og árið áður. 

Helstu niðurstöður ársreiknings eru að finna í meðfylgjandi fréttatilkynningu.

Attachments

arsreikn2007.pdf arsreikngrein2008.pdf frettatilkynning2008.pdf