Fréttatilkynning, vegna framlagningar ársreiknings Vopnafjarðarhrepps fyrir árið 2007. Ársreikningur Vopnafjarðarhrepps fyrir árið 2007 var lagður fram til fyrri umræðu í hreppsnefnd Vopnafjarðarhrepps miðvikudaginn 14. maí 2007. Samkvæmt sveitarstjórnarlögum skal fjalla um ársreikninginn á tveimur fundum í sveitarstjórn, síðari umræða verður um ársreikninginn á hreppsnefndarfundi fimmtudaginn 22. maí nk. Ársreikningur Vopnafjarðarhrepps fyrir árið 2007 hefur að geyma ársreikning fyrir þær rekstrareiningar, sem falla undir A-hluta starfsemi sveitarfélagsins og samantekinn ársreikning fyrir alla starfsemi þess þ.e. A-og B- hluta sbr. 60. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998. Til A-hluta þ.e. sveitarsjóðs, telst starfsemi sem að hluta eða öllu leyti er fjármögnuð með skatttekjum. Hér er um að ræða aðalsjóð, en auk hans eru eignasjóður og þjónustumiðstöð Vopnafjarðarhrepps í A-hluta. Til B-hluta teljast fjárhagslega sjálfstæð fyrirtæki sem eru í eigu sveitarfélagsins, en rekstur þessara fyrirtækja er fjarmagnaður með þjónustutekjum. Fyrirtæki sem falla undir B-hluta starfsemi sveitarfélagsins eru Hafnarsjóður, vatnsveita, Fráveita, Félagslegar íbúðir, Leiguíbúðir, Félagsheimilið, Lyfsala, Skiphólmi ehf. og Arnarvatn ehf. Ársreikningurinn er gerður gerður samkvæmt kostnaðarverðsreglu og í samræmi við sveitarstjórnarlög, lög um ársreikninga nr. 144/1994, reglugerð um bókhald og ársreikninga sveitarfélaga nr. 944/2000 og auglýsingar félagsmálaráðuneytisins um reikningsskil sveitarfélaga. Ársreikningurinn byggir í meginatriðum á sömu reikningsskilaaðferðum og árið áður. Helstu niðurstöður ársreiknings eru að finna í meðfylgjandi fréttatilkynningu.