- Fitch lækkar lánshæfiseinkunn Kaupþings banka í A-



Alþjóðlega matsfyrirtækið Fitch hefur í dag lækkað lánshæfiseinkunnir
Kaupþings banka hf. Langtíma einkunn bankans var lækkuð um eitt þrep
úr A í A- og skammtímaeinkunn úr F1 í F2. Óháð einkunn B/C,
stuðningseinkunn 2 og stuðningeinkunnargólf BBB eru óbreyttar. Horfur
fyrir langtímaeinkunn eru neikvæðar.
Fitch segir m.a. í tilkynningu sinni: "Lánshæfismat Kaupþings, sem er
stutt af landfræðilegri áhættudreifingu í starfsemi bankans ásamt
góðum árangri í að fella erlend dótturfélög að starfsemi hans, tekur
einnig mið af væntingum um verri horfur á helstu mörkuðum bankans það
er á Íslandi og Bretlandi. Sterk lausafjárstaða bankans og opnun
innlánareikninga í fjölmörgum löndum styðja við áhættudreifingu í
fjármögnun hans."
 
Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar veita Guðni Aðalsteinsson, framkvæmdastjóri
Fjárstýringar, í síma 444 6126 og Jónas Sigurgeirsson,
framkvæmdastjóri Samskiptasviðs, í síma 444 6112.

Attachments

Fitch Ratings 09.05.2008