- 2007


Ársreikningur Heklu fasteigna ehf. fyrir árið 2007 var staðfestur af stjórn og
framkvæmdastjóra félagsins á stjórnarfundi þann 27. mars 2008. 
Ársreikningurinn er gerður í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla
(IFRS).  Ársreikningurinn hefur fengið fyrirvaralausa áritun löggilts
endurskoðanda félagsins. 

Rekstur

Heildartekjur Heklu fasteigna ehf. námu á árinu 185 millj. kr. og rekstrargjöld
námu 46,4 millj. kr.  Rekstrarhagnaður, EBITDA, nam því 138,6 millj. kr.  Að
teknu tilliti til matsbreytinga fjárfestingaeigna og fjármagnsliða nam hagnaður
fyrir tekjuskatt 145,1 millj. kr. og hagnaður ársins nam 118,8 millj. kr. 

Efnahagur

Heildareignir Heklu fasteigna ehf. voru í árslok bókfærðar á 2.023,9 millj. kr.
 Heildarskuldir félagsins námu á sama tíma 1.724,3 millj. kr.   Í árslok 2007
var eigið fé Heklu fasteigna ehf. 299,6 millj. kr. og eiginfjárhlutfall 14,8%. 

Nánari upplýsingar veitir

Birgir Sigurðsson, framkvæmdastjóri, sími: 590 5000, netfang: birgir@hekla.is.

Attachments

arsreikningur - hekla fasteignir ehf - 2007 - 270308.pdf yfirlit fyrir ki 31 12 07.xls