- Dagskrá og tillögur fyrir aðalfund HB Granda hf. 28. mars 2008


D A G S K R Á


1.	Skýrsla stjórnar félagsins um starfsemi þess síðastliðið ár.

2.	Endurskoðaður ársreikningur lagður fram til staðfestingar.

3.	Tillaga stjórnar um greiðslu arðs.

4.	Ákvörðun um þóknun til stjórnarmanna.

5.	Kosning stjórnar félagsins.

6.	Kosning endurskoðenda skv. 21. gr.

7.	Tillaga um að stjórn fái heimild til kaupa á eigin hlutum.

8.	Önnur mál, sem löglega kunna að vera lögð fyrir fundinn eða fundurinn
       samþykkir að taka til meðferðar. 

Atkvæðaseðlar og önnur fundargögn verða afhent á fundarstað frá kl. 16:30 á
aðalfundardegi. 
 

Tillögur fyrir aðalfundi HB Granda hf. 28. mars 2008


Tillaga um greiðslu arðs

“Aðalfundur HB Granda hf. haldinn 28. mars 2008 samþykkir að greiddur verði 12%
arður (0,12 kr á hlut) vegna ársins 2007, alls að fjárhæð 203.850.535 kr.
Arðurinn verði greiddur 28. apríl 2008. Síðasti viðskiptadagur þar sem arður
fylgir bréfunum er 28. mars 2008 og arðleysisdagur því 31. mars 2008.
Arðsréttindadagur er 2. apríl 2008. (Arður greiðist þeim sem skráðir eru í
hlutaskrá að loknu uppgjöri Verðbréfaskráningar Íslands fyrir kl. 9:00 þann 2.
apríl 2008)” 


Tillaga um þóknun til stjórnarmanna

“Þóknun til stjórnarmanna fyrir liðið ár kr. ¬¬800.000-. Formaður taki
þrefaldan hlut.” 


Kosning stjórnar

Framboðsfrestur rennur út fimm dögum fyrir upphaf aðalfundar. Upplýsingar um
frambjóðendur til stjórnar verða birtar eigi síðar en tveimur dögum fyrir
aðalfund. 


Kosning endurskoðanda

“Endurskoðunarfélag: KPMG hf.”


Tillaga um að stjórn fái heimild til kaupa á eigin hlutum

“Aðalfundur veitir stjórn félagsins heimild til að kaupa eigin hluti í
félaginu. Heimild þessi stendur í 18 mánuði og takmarkast við að samanlögð kaup
fari ekki yfir 10% af heildar¬hlutafé félagsins á hverjum tíma.  Kaupverð hluta
skal vera hæst 15% yfir síðasta þekktu söluverði á First North markaðinum áður
en kaup eru gerð.” 



Dagskrá, tillögur stjórnar og endurskoðaður ársreikningur fyrir árið 2007
liggja frammi á skrifstofu félagsins Norðurgarði, Reykjavík, hluthöfum til
sýnis. Einnig má nálgast gögnin á heimasíðu félagsins www.hbgrandi.is