Leiðrétting - Hlutafjárútboð NÝHERJA 17. - 25. mars 2008 - Frétt birt 2008.03.14:17:31:49


Leiðrétt tilkynning - Viðbótarupplýsingar

Á aðalfundi Nýherja hf. þann 25. janúar 2008 var samþykkt að breyta samþykktum
félagsins þar sem stjórn félagsins er heimilt að auka hlutafé félagsins um allt
að kr. 65 milljónir sem verði ráðstafað þannig að allt að kr. 25 milljónum
verði ætlað til greiðslu fyrir hlutafé í TM Software hf. og allt að kr. 40
milljónum verði ætlað til sölu til núverandi hluthafa og starfsmanna innan
Nýherjasamstæðunnar. Stjórn félagsins hefur ákveðið að nýta þessa heimild og
auka hlutafé félagsins um kr. 45 milljónir á genginu 22,0. Þar af  verða
15.902.553 hlutir nýttir sem hluti af greiðslu til seljenda TM Software hf.,
27.097.447 hlutir ætlaðir til sölu til núverandi hluthafa og 2.000.000 hlutir
ætlaðir til sölu til starfsmanna samstæðunnar. 

Hlutafjárútboðið hefst kl. 09:00 mánudaginn 17. mars 2008 og stendur til kl.
10:00 þriðjudaginn 25. mars 2008. Niðurstöður útboðsins verða birtar
opinberlega fyrir kl. 16:00 miðvikudaginn 26. mars 2008. Áskriftarréttur
hluthafa verður hlutfallslegur miðað við hlutafjáreign eins og hún var skráð í
hlutaskrá Nýherja hf. í lok dags fimmtudaginn 13. mars 2008. Gjalddagi er 28.
mars 2008. 

OMX Nordic Exchange Iceland hf. tekur hlutina til viðskipta eigi síðar en 3.
apríl 2008. 

Hluthöfum er heimilt að skrá sig fyrir færri eða fleiri hlutum en þeir eiga
forkaupsrétt á. Þeim hlutum sem ekki verður ráðstafað í samræmi við
framangreint verður útdeilt í hlutfalli við hlutafjáreign til þeirra sem óska
eftir fleiri hlutum en þeir eiga forkaupsrétt á samkvæmt lýsingu. 

Hverjum og einum starfsmanni samstæðunnar sem eru í starfi 14. mars 2008 býðst
að kaupa annað hvort 5.000 eða 10.000 hluti. Sama útboðstímabil er fyrir
starfsmenn og hluthafa. Verði umframáskrift á hlutum til starfsmanna lækkar
fjöldi hluta sem þeir hafa skráð sig fyrir í samræmi við hlutfallslegt vægi
umframáskriftar. 

Sparisjóður Mýrasýslu er umsjónaraðili útboðs. Rafræn útgáfa lýsingar er birt á
vefsíðu útgefanda, www.nyherji.is, auk þess er hún aðgengileg á vefsíðu
umsjónaraðila, www.spm.is og á vefsíðu Fjármálaeftirlitsins, www.fme.is. Einnig
má nálgast lýsinguna á skrifstofu útgefanda í Borgartúni 37, 105 Reykjavík og á
skrifstofu Sparisjóðs Mýrasýslu að Digranesgötu 2, 310 Borgarnesi frá 14. - 26.
mars 2008. Lýsingin er gild í 12 mánuði frá útgáfudegi og aðgengi að henni
tryggt í þann