Hlutabréf Skipta hf. verða tekin til viðskipta í OMX Nordic Exchange Iceland hf. (OMX ICE), þann 19. mars 2008. Útgefnir hlutir í Skiptum hf. eru 7.368.421.053, hver hlutur er ISK 1 að nafnverði. Tilgangur félagsins samkvæmt 1. gr. samþykkta þess er að ávaxta fé sem hluthafar hafa bundið í starfseminni með rekstri í félaginu, kaupum, sölu og eignarhaldi á verðbréfum, einkum í dótturfélögum á sviði fjarskipta og upplýsingatækni, þjónustu við dótturfélög, kaupum, sölu og rekstri fasteigna og lausafjár, ásamt lánastarfsemi tengd rekstrinum og annar skyldur rekstur. Heimilt er félaginu að standa að stofnun eða gerasta eignaraðili að öðrum félögum, svo og að stofna félag eða félög sem alfarið verði í eigu þess til að annast ákveðna þætti í starfsemi þess. Auðkenni Skipta í viðskiptakerfi OMX ICE verður SKIPTI. ISIN-auðkenni IS0000015089. Orderbook ID 53796. Viðskiptalota 10.000 hlutir. Skipti verður tekið inn í vísitölu fjarskipta 19. mars 2008. Atvinnugreinaflokkun skv. GICS staðli: GICS númer og nafn Undirgrein: 50101020 Integrated Telecommunication Services Atvinnugrein: 501010 Diversified Telecommunication Services Atvinnugreinahópur: 5010 Telecommunication Services Atvinnugeiri: 50 Telecommunication Services Umsjónaraðili töku til viðskipta er Kaupþing Banki hf.