- Stjórn Icelandic Group samþykkir hlutafjáraukningu um € 30 milljónir að markaðsverði


Tap ársins € 29,3 milljónir 

•  Vörusala € 1.384,4 milljónir á árinu og € 327,8 milljónir á fjórða
ársfjórðungi 

•  Samdráttur í tekjum 5,9% á árinu, samdráttur 8,5% á fjórða ársfjórðungi

•  Hagnaður fyrir vexti, skatta og afskriftir (EBITDA) € 28,3 milljónir á árinu
og € 1,4 milljónir á fjórða ársfjórðungi 
 
•  Rekstrartap (EBIT) € 2,1 milljón á árinu og € 14,8 milljónir á fjórða
ársfjórðungi 

•  Gjaldfærð virðisrýrnun € 11,8 milljónir

•  Tap € 29,3 milljónir á árinu og € 29,0 milljónir á fjórða ársfjórðungi

•  Handbært fé frá rekstri fyrir skatta og vexti € 57,2 milljónir

•  Heildareignir € 796,1 milljónir - eiginfjárhlutfall 16,6 %

•  Arðsemi eiginfjár neikvæð um 16,7%

•  Tillaga stjórnar um aukningu á hlutafé um € 30 milljónir að markaðsverði


Finnbogi Baldvinsson forstjóri Icelandic Group:
„Árið 2007 var Icelandic Group afar erfitt og þar af var fjórði
ársfjórðungurinn með slökustu afkomuna. Það hagræðingarferli sem félagið hefur
margkynnt að sé í gangi hefur dregist og voru upphafleg markmið um
endurskipulagningu félagsins óraunhæf. Einföldun á flóknum rekstri félagsins
með fækkun verksmiðja og söluskrifstofa er vel á veg komin.  Aðgerðirnar hafa
gert okkur kleift að setja rekstrareiningunum skýrari markmið og er árangur
þessarar vinnu farinn að koma í ljós.  Félagið er nú vel í stakk búið til að
takast á við hlutverk sitt sem leiðandi matvælaframleiðandi í sjávarafurðum. 

Mikill samdráttur var í sölu Icelandic USA strax í upphafi fjórða ársfjórðungs
2007 og hafði efnahagssamdráttur í Bandaríkjunum veruleg áhrif á rekstur
félagsins. Þá kom í ljós að rekstur Pickenpack Gelmer í Frakklandi var verri en
áður hafði komið fram.  Þetta ásamt fleiru leiddi til þess að Icelandic Group
náði ekki EBITDA markmiðum sínum, eins og kynnt hafði verið í níu mánaða
uppgjöri félagsins. 

Ég sé fram á að jafnvægi náist í rekstrinum á þriðja ársfjórðungi 2008 og að
félagið verði rekið með hagnaði á árinu 2009. Félagið mun nú einbeita sér að
rekstri og tími skuldsettra yfirtaka og kaupa á félögum er liðinn. Eitt megin
verkefni Icelandic í dag er að bregðast við breyttu rekstrarumhverfi félagsins
sem einkennist af miklum hráefnishækkunum ásamt hækkandi fjármagnskostnaði með
lækkun á öðrum rekstrarkostnaði og afurðaverðshækkunum.

Sú staðreynd að stjórn félagsins hefur samþykkt að leggja fyrir aðalfund € 30
milljón hlutafjáraukningu, felur í sér sterk skilaboð til markaðarins. Með
þessu er stjórn félagsins að sýna með áþreifanlegum hætti að hún stendur
heilshugar á bak við þau áform sem uppi eru um einföldun á rekstri félagsins.
Þetta er líka traustsyfirlýsing á þau markmið sem sett hafa verið fram um
hagnað af rekstri á árinu 2009.” 



Frekari upplýsingar veitir:

Finnbogi A. Baldvinsson, forstjóri Icelandic Group S: +49 1723 198 727

Attachments

frettatilkynning 2007.pdf icelandic group financial statements 2007.pdf