Hluthafafundur Glitnis banka hf.


Með vísan til 7. gr. samþykkta Glitnis banka hf. er hér með boðað til
hluthafafundar í félaginu. Hluthafafundurinn verður haldinn í höfuðstöðvum
Glitnis banka hf., Kirkjusandi 2, 5. hæð, Reykjavík, miðvikudaginn 19. mars
2008 kl. 9:00. 

Dagskrá:

-         Tillaga til breytinga á samþykktum félagsins.[1]

Atkvæðaseðlar og aðgöngumiðar  að fundinum verða afhentir  hluthöfum eða
umboðsmönnum þeirra á fundarstað frá kl. 8:00 á fundardegi. Afhendingu
aðgöngumiða og atkvæðaseðla verður hætt kl. 9:00. 

Dagskrá  fundarins og endanlegar  tillögur liggja frammi hluthöfum til sýnis á
Kirkjusandi  2, 5.  hæð, viku fyrir fundardag. Þessi gögn verða einnig
aðgengileg á www.glitnir.is. 

Reykjavík, 11. mars 2008
Stjórn Glitnis banka hf.



[1] Gerð er tillaga um að hluthafafundur samþykki heimild til stjórnar til
útgáfu víkjandi skuldabréfa að fjárhæð allt að kr. 15.000.000.000 og breytingu
á samþykktum félagsins um heimild stjórnar til hækkunar hlutafjár í tengslum
við útgáfuna.

Attachments

hluthafafundur 2008 03.pdf