- Niðurstöður aðalfundar 11. mars 2008


1.	Ákvörðun um meðferð taps
Samþykkt var að tap félagsins á árinu 2007 yrði fært til lækkunar á eigin fé
félagsins og að ekki yrði greiddur út arður til hluthafa á árinu 2008. 

2.	Starfskjarastefna
Samþykkt var eftirfarandi tillaga stjórnar um kauprétti á hlutabréfum til
starfsmanna og starfskjarastefnu FL Group hf.: 

„FL Group hf. leggur ríka áherslu á að félagið geti ráðið til sín öfluga
starfsmenn og haldið lykilstarfsmönnum til að tryggja áframhaldandi vöxt á
alþjóðamarkaði og viðunandi ávöxtun eigin fjár. 

Í þessum tilgangi hefur félagið gert samninga við starfsmenn sem gerir þeim
kleift að kaupa hluti í félaginu og jafnframt gefið út og endurnýjað kauprétti. 

Við framkvæmd á framangreindu markmiði félagsins geta kaupréttir starfsmanna á
hverjum tíma numið í heild allt að 9% af útgefnu hlutafé félagsins eins og það
er hverju sinni. Kaupverð (kaupréttargengi)  skal samsvara markaðsvirði á þeim
degi sem rétturinn er veittur og verður virkur. 

Starfskjarastefna FL Group  byggir á almennum sjónarmiðum um góða stjórnarhætti
fyrirtækja og framangreindum sjónarmiðum um vöxt félagsins og ávöxtun eigin
fjár. Stjórn FL Group hefur samþykkt eftirfarandi starfskjarastefnu fyrir
félagið með vísan til 79. gr. A laga nr. 2/1995, um hlutafélög. 

Stjórnarmenn fá greidda fasta þóknun fyrir störf sín. Þóknun stjórnarmanna og
varamanna jafnt fyrir almenn stjórnarstörf og störf í undirnefndum skal ákveðin
á aðalfundi félagsins fyrir tímabilið frá aðalfundi til næsta aðalfundar. 
 
Heimilt er að ráða stjórnarmenn til sérstakra verkefna fyrir félagið umfram
hefðbundin stjórnarstörf og greiða fyrir slík störf samkvæmt sérstökum samningi
sem skal samþykktur af stjórn félagsins. 

Starfskjör forstjóra FL Group skulu grundvallast á skriflegum
ráðningarsamningi. Taka starfskjörin m.a. mið af ábyrgð og eðli starfans í
ljósi stærðar og umsvifa félagsins, þeim starfskjörum sem almennt gerast á
fjármálamörkuðum í þeim löndum sem félagið starfar í og þeim árangri sem
félagið nær. 

Starfskjör forstjóra geta verið samansett af föstum launum, árangurstengdum
greiðslum í reiðufé og hlutabréfum, kaupréttum, skuldabréfum með breytirétti,
lífeyrisréttindum og eftir atvikum eftirlaunaréttindum og starfslokagreiðslum.
Starfskjör annarra lykil¬stjórnenda skulu í meginatriðum lúta sömu reglum eftir
því sem ástæða þykir til. 

Á aðalfundi félagsins skulu hluthafar upplýstir um heildarfjárhæð greiddra
launa til stjórnarmanna og forstjóra á liðnu starfsári; föst laun þeirra,
fjárhæð árangurstengdra launa, greiðslur í formi hlutabréfa, kauprétta,
forkaupsréttar, greiðslur frá öðrum félögum í samstæðu félagsins og
starfslokagreiðslur.“ 
 
3.	Þóknun til stjórnarmanna
Samþykkt var að þóknun til stjórnarmanna frá aðalfundi 2008 til aðalfundar 2009
yrði eftirfarandi: 
Stjórnarformaður kr. 350.000 á mánuði.
Varaformaður kr. 250.000 á mánuði.
Aðrir stjórnarmenn kr. 175.000 á mánuði. 
Varamönnum verði greiddar kr. 50.000 fyrir hvern setinn fund.  
Stjórnarmenn skulu fá fasta þóknun fyrir hvern fund sem þeir sitja í
undirnefndum stjórnar og skal sú þóknun vera kr. 100.000 til handa formönnum
nefnda fyrir hvern fund en kr. 50.000 til handa öðrum nefndarmönnum. Þóknun
fyrir fundasetu í undirnefndum á tímabilinu skal þó ekki vera hærri en kr.
600.000 fyrir formann nefndar og kr. 300.000 fyrir aðra nefndarmenn. 

4.	Stjórn félagsins
Eftirfarandi aðilar voru sjálfkjörnir í stjórn félagsins til eins árs:

Aðalmenn:
Árni Hauksson, kt. 250766-5569
Eiríkur Jóhannsson, kt. 080268-4839
Hannes Smárason, kt. 251167-3389
Jón Ásgeir Jóhannesson, kt. 270168-4509
Katrín Pétursdóttir, kt. 230562-2109
Pálmi Haraldsson, kt. 220160-3789
Þorsteinn M. Jónsson, kt. 180263-3309

Varamenn:
Peter Mollerup, kt. 220173-2759
Þórður Bogason, kt. 260663-3809

Á stjórnarfundi að loknum aðalfundinum var Jón Ásgeir Jóhannesson kjörinn
formaður stjórnar og Pálmi Haraldsson varaformaður. 

5.	Endurskoðendur 
Samþykkt var að KPMG hf., Borgartúni 27, Reykjavík, yrði endurkjörið
endurskoðendafélag félagsins fyrir árið 2008. 

6.	Breytingar á samþykktum félagsins.
Samþykkt var að gera eftirfarandi breytingar á 4. gr. samþykkta félagsins:

Heimild félagsstjórnar skv. b-lið 2. mgr. 4. gr. samþykkta félagsins var aukin
þannig að stjórn er heimilt að hækka hlutafé félagsins um allt að kr.
2.500.000.000, án forgangsréttar, á næstu 5 árum frá 11. mars 2008 að telja. 

Auk þess var a-liður 2. mgr. 4. gr. samþykkta félagsins, þar sem félagsstjórn
var veitt heimild til að hækka hlutafé félagsins til að fjármagna kaup á hlutum
í Tryggingamiðstöðinni hf., felld niður og að b- og c-liðir urðu a- og b-
liðir. 

Jafnframt var setningin „Hinir nýju hlutir skulu veita réttindi í félaginu frá
skrásetningardegi og um þá skulu samþykktir félagsins gilda.“ felld niður. 

Eftir breytingarnar verður kaflinn „Hlutafé, hlutir og flokkar“ í 4. gr.
samþykktanna svohljóðandi: 

„Hlutafé, hlutir og flokkar

Hlutafé félagsins er kr. 13.584.265.973. 

Stjórn félagsins er heimilt að auka hlutafé félagsins um allt að 3.000.000.000
króna að nafnverði með sölu nýrra hluta þannig:	 
a.	Stjórn félagsins er heimilt að auka hlutafé félagsins um allt að kr.
2.500.000.000 að nafnverði.  Hækkunina má stjórnin framkvæma í áföngum á næstu
fimm árum frá 11. mars 2008 að telja.  Stjórninni er heimilt að selja
aukningarhlutaféð án þess að forgangsréttarákvæði 34. greinar laga nr. 2/1995
um hlutafélög og ákvæði 4. gr. samþykkta félagsins eigi við.  Stjórn félagsins
ákveður útboðsgengi hluta, rökstyður það, sölureglur hverju sinni, fresti til
áskriftar, fresti til greiðslu og hvort heimilt skuli að greiða hluti með öðru
en reiðufé.  Nýir hlutir skulu veita réttindi í félaginu frá skrásetningardegi
og um þá skulu samþykktir félagsins gilda. 	 
b.	Stjórn félagsins er heimilt að auka hlutafé félagsins um allt að kr.
500.000.000 að nafnverði.  Hækkunina má stjórnin framkvæma í áföngum á næstu
fimm árum frá 25. september 2007 að telja.  Forgangsréttarákvæði 34. greinar
laga nr. 2/1995 um hlutafélög og ákvæði 4. gr. samþykkta félagsins skulu eiga
við um aukninguna.  Stjórn félagsins ákveður útboðsgengi hluta, rökstyður það,
sölureglur hverju sinni, fresti til áskriftar, fresti til greiðslu og hvort
heimilt skuli að greiða hluti með öðru en reiðufé.  Nýir hlutir skulu veita
réttindi í félaginu frá skrásetningardegi og um þá skulu samþykktir félagsins
gilda. 

Útboðsgengi hluta og sölureglur ákveður stjórnin í samræmi við V. kafla
hlutafélagalaga nr. 2/1995. Heimild þessa skal stjórnin nýta innan 5 ára frá
samþykkt hennar. Heimildina má nýta í einu lagi eða í  hlutum eftir ákvörðun
stjórnar. 

Hlutaféð skiptist í einnar krónu hluti eða margfeldi þeirrar fjárhæðar. 

Til aukningar hlutafjár þarf samþykki hluthafafundar.“ 

7.	Kaup á eigin bréfum
Samþykkt var að veita stjórn félagsins heimild til að heimila félagsstjórn á
næstu 18 mánuðum að kaupa allt að 10% af eigin hlutum, með vísan til 55. gr.
hlutafélagalaga nr. 2/1995. Má kaupverð bréfanna verða allt að 20% yfir
meðalsöluverði hluta skráðu í Kauphöll Íslands á næstliðnum tveimur vikum áður
en kaup eru gerð. Ekki eru sett lágmörk á heimild þessa, hvorki hvað varðar
kaupverð né stærð hlutar sem keyptur eru hverju sinni. Samskonar heimild, sem
samþykkt var á síðasta aðalfundi fellur niður. 

Nánari upplýsingar veitir:
Júlíus Þorfinnsson, forstöðumaður samskiptasviðs, sími: 591 44000