Ársuppgjör 2007


Fréttatilkynning                                                                

                        Afkoma Icebank hf. á árinu 2007:                        
                         Heildareignir nær þrefaldast                           
                         og vaxtatekjur nær tvöfaldast                          
                 - hagnaður 1.616 milljónir króna eftir skatta                  

                                                      Reykjavík, 5. febrúar 2008

Hagnaður Icebank 2007 nam 1.720 milljónum króna fyrir skatta samanborið við     
6.840 milljónir króna árið á undan. Hagnaður eftir skatta nam 1.616 milljónum   
króna og arðsemi eigin fjár eftir skatta var 13,5%. Hreinar vaxtatekjur jukust  
um 87% á árinu, námu 2.341 milljónum króna. Heildareignir Icebank nær           
þrefölduðust og voru 252,5 milljarðar króna í árslok. Eiginfjárhlutfall (CAD) í 
árslok var 11,0%.                                                               
Helstu niðurstöður úr ársreikningi Icebank fyrir árið 2007:                     
Hagnaður nam 1.616 milljónum króna en hagnaður fyrir skatta 1.720 milljónum     
króna. Arðsemi eigin fjár eftir skatta var 13,5%.                               
Hreinar vaxtatekjur Icebank námu 2.341 milljón króna 2007 samanborið við 1.253  
milljónir árið á undan sem er aukning um 87%. Hreinar vaxtatekjur eru töluvert  
hærri en rekstrarkostnaður bankans.                                             
Heildareignir jukust um 190% og námu 252,5 milljörðum króna í árslok 2007       
samanborið við 86,9 milljarða í upphafi árs.                                    
Áhættuskuldbindingar sem tengjast skuldabréfavafningum (s.s. CDOs, SIVs og CLOs)
nema innan við 3% heildareigna Icebank. Þessar eignir tengjast ekki svonefndum  
undirmálslánum („sub-prime loans“).                                             
Eiginfjárhlutfall (CAD) var 11,0% í árslok 2007. Eiginfjárþáttur A var 15,2%.   
Helstu niðurstöður fjórða ársfjórðungs 2007:                                    
Tap eftir skatta á fjórða ársfjórðungi 2007 nam 2.646 milljónum króna.          
Hreinar rekstrartekjur fjórða ársfjórðungs voru neikvæðar um 2.747 milljónir    
króna.                                                                          
Hreinar vaxtatekjur námu 510 milljónum króna í samanburði við 675 milljónir á   
þriðja ársfjórðungi.                                                            
Gengistap bankans á ársfjórðungnum nam 3.505 milljónum króna. Munar þar mest um 
eign bankans í Exista sem lækkaði um 42,5% á tímabilinu. Bankinn hefur gert     
afleiðusamninga sem vörðu hann að hluta gegn óhagstæðri gengisþróun. Tekjufærsla
á ársfjórðungnum vegna þessa nam nálægt 600 milljónum króna.                    
Ár mikilla breytinga hjá Icebank                                                
Í maí var samið um 217,5 milljóna evra sambankalán sem er stærsta sambankalán í 
sögu bankans og 117,5 milljónum evra hærra en stefnt var að. Lánið hafði afar   
jákvæð áhrif á lausafjárstöðu Icebank þar sem bankinn þurfti ekki að leita út á 
lánsfjármarkaðinn seinni hluta ársins þegar aðstæður á markaði versnuðu.        

Í samræmi við stefnumótun Icebank, sem var kynnt 2006, ákváðu eigendur bankans  
að breikka eignarhaldið til að auðvelda vöxt bankans. Rúm 43% bankans eru nú í  
eigu annarra aðila en sparisjóða, þar af tæp 12% í eigu stjórnenda bankans.  Í  
kjölfarið komu nýir aðilar að stjórn bankans og í lok árs var nýr bankastjóri   
ráðinn. Þrátt fyrir þessar breytingar er stefna bankans óbreytt. Icebank er     
viðskiptabanki sem leggur áherslu á heildsölu- og fjárfestingarbankastarfsemi   
gagnvart sparisjóðum, innlendum og erlendum fjármálafyrirtækjum og öðrum stærri 
aðilum.                                                                         

Á árinu hélt Icebank áfram að byggja undir frekari ytri vöxt og jafnframt var   
fjárfest í innviðum bankans.                                                    
Nýtt tekjusvið varð til við kaup á Behrens fyrirtækjaráðgjöf hf.                
Mikil áhersla var lögð á að efla áhættustýringu, upplýsingatækni og             
lögfræðisvið.                                                                   
Starfsmönnum fjölgaði úr 74 í 102 eða um 42%.                                   
                                                                                
Icebank fór ekki varhluta af óróa á hlutabréfamarkaði, en bankinn er stór       
hluthafi í Exista. Icebank seldi fjórðung hluta sinna í félaginu á fyrsta       
ársfjórðungi og átti í árslok um 2,5% hlut í félaginu. Icebank hefur gert       
afleiðusamninga sem að hluta vörðu hann gegn óhagstæðri gengisþróun bréfanna.   

Efnahagur Icebank óx um 190% og nam 252,5 milljörðum króna í lok árs miðað við  
86,9 milljarða í árslok 2006. Þennan vöxt má að miklu leyti rekja til aukinna   
viðskipta við innlendar fjármálastofnanir og veðlánsviðskipta við Seðlabanka    
Íslands.                                                                        

Agnar Hansson bankastjóri:                                                      
„Árangur Icebank á árinu 2007 er viðunandi að teknu tilliti til markaðsaðstæðna.
Ánægjulegt er að sjá að hreinar vaxtatekjur bankans eru umtalsvert hærri en     
heildarrekstrarkostnaður hans. Hlutverk bankans á innlendum markaði hefur verið 
útvíkkað. Við höfum lagt okkur fram við að eiga gott samstarf við aðrar         
innlendar fjármálastofnanir með það fyrir augum að geta veitt þeim sambærilega  
þjónustu og Icebank hefur veitt sparisjóðunum undanfarna áratugi. Þátttaka      
bankans á millibankamarkaði og í veðlánum við Seðlabanka Íslands hefur öðru     
fremur stuðlað að þreföldun efnahagsreikningsins en vissulega er þar um að ræða 
viðskipti sem til eru komin vegna sérstakra aðstæðna á markaði.                 

Hræringar undanfarinna mánaða undirstrika nauðsyn þess að takmarka þá áhættu sem
er samfara hlutabréfaeign. Síðastliðin ár hefur afkoma bankans verið um of háð  
þróun á gengi hlutabréfa Exista en áfram er stefnt að því að minnka eignarhlut  
bankans í félaginu þegar aðstæður leyfa. Mikil vinna hefur verið lögð í að efla 
grunnrekstur bankans. Starfsemi fjárstýringar hefur verið efld, nýjum           
fjárfestingarleiðum á fyrirtækjasviði bætt við og nú síðast hefur nýtt          
tekjusvið, fyrirtækjaráðgjöf, verið stofnað. Það mun gera bankanum kleift að    
veita víðfeðmari þjónustu og auka þóknunartekjur. Fyrsta skrefið í útrás bankans
var stigið með kaupum hans á Behrens fyrirtækjaráðgjöf hf. en þá eignaðist      
bankinn skrifstofur í Eystrasaltslöndunum sem miklar vonir eru bundnar við.     

Við gerum okkur grein fyrir því að ástandið á fjármálamörkuðum er viðkvæmt og   
næstu mánuði getur róðurinn orðið þungur. Hins vegar er bankinn vel í stakk     
búinn til að bregðast skjótt við og nýta þau tækifæri sem gefast hverju sinni.“ 

Helstu tölur úr rekstrar- og efnahagsreikningi bankans 2005 til 2007:           
--------------------------------------------------------------------------------
| Rekstrarreikningur 2005, 2006 og 2007:             |            |            |
--------------------------------------------------------------------------------
| Milljónir króna                       |       2007 |       2006 |       2005 |
--------------------------------------------------------------------------------
| Hreinar vaxtatekjur                   |      2.341 |      1.254 |        823 |
--------------------------------------------------------------------------------
| Hreinar þjónustutekjur                |        107 |        136 |        119 |
--------------------------------------------------------------------------------
| Aðrar hreinar rekstrartekjur          |        890 |      6.430 |      2.831 |
--------------------------------------------------------------------------------
| Hreinar rekstrartekjur                |      3.338 |      7.820 |      3.773 |
--------------------------------------------------------------------------------
| Önnur rekstrargjöld                   |     -1.436 |       -996 |       -708 |
--------------------------------------------------------------------------------
| Virðisrýrnun útlána                   |       -182 |         15 |       -142 |
--------------------------------------------------------------------------------
| Hagnaður fyrir skatta                 |      1.720 |      6.840 |      2.923 |
--------------------------------------------------------------------------------
| Skattar                               |       -104 |     -1.178 |       -542 |
--------------------------------------------------------------------------------
| Hagnaður eftir skatta                 |      1.616 |      5.662 |      2.381 |
--------------------------------------------------------------------------------
--------------------------------------------------------------------------------
| Efnahagsreikningur 2005, 2006 og 2007:             |            |            |
--------------------------------------------------------------------------------
| Milljónir króna                       |       2007 |       2006 |       2005 |
--------------------------------------------------------------------------------
| Sjóður og innstæður í Seðlabanka      |      4.424 |      7.293 |     10.387 |
--------------------------------------------------------------------------------
| Útlán og kröfur                       |     97.198 |     61.520 |     45.555 |
--------------------------------------------------------------------------------
| Veltufjáreignir                       |    136.355 |      8.870 |      5.124 |
--------------------------------------------------------------------------------
| Fjáreignir á gangvirði                |     12.972 |      8.805 |      4.226 |
--------------------------------------------------------------------------------
| Rekstrarfjármunir                     |        332 |        343 |        330 |
--------------------------------------------------------------------------------
| Óefnislegar eignir                    |      1.062 |            |            |
--------------------------------------------------------------------------------
| Aðrar eignir                          |        169 |         95 |         45 |
--------------------------------------------------------------------------------
| Eignir samtals                        |    252.512 |     86.925 |     65.666 |
--------------------------------------------------------------------------------
|                                       |            |            |            |
--------------------------------------------------------------------------------
| Innlán frá fjármálafyrirt. og Seðlab. |    117.388 |     12.705 |     13.675 |
--------------------------------------------------------------------------------
| Önnur innlán                          |     10.955 |      4.131 |      4.165 |
--------------------------------------------------------------------------------
| Lántökur                              |    104.753 |     53.258 |     39.828 |
--------------------------------------------------------------------------------
| Aðrar skuldir                         |        693 |        293 |        204 |
--------------------------------------------------------------------------------
| Víkjandi lán                          |      2.410 |      2.430 |      1.126 |
--------------------------------------------------------------------------------
| Veltufjárskuldir                      |        841 |          7 |         17 |
--------------------------------------------------------------------------------
| Skattskuld                            |      2.111 |      2.094 |        916 |
--------------------------------------------------------------------------------
| Eigið fé                              |     13.361 |     12.007 |      5.735 |
--------------------------------------------------------------------------------
| Skuldir og eigið fé samtals           |    252.512 |     86.925 |     65.666 |
--------------------------------------------------------------------------------

--------------------------------------------------------------------------------
| Helstu kennitölur    |        |        |        |        |         |         |
| 2002-2007:           |        |        |        |        |         |         |
--------------------------------------------------------------------------------
|                      |   2007 |   2006 |   2005 |   2004 |    2003 |    2002 |
--------------------------------------------------------------------------------
| Kostnaðarhlutfall    |  43,0% |  12,8% |  18,8% |  35,1% |   57,9% |   63,4% |
--------------------------------------------------------------------------------
| Vaxtamunur           |   1,6% |   1,8% |   1,6% |   1,6% |    1,4% |    1,0% |
--------------------------------------------------------------------------------
| Arðsemi eigin fjár   |  13,5% |  63,8% |  54,3% |  28,5% |    7,0% |    5,7% |
| eftir skatta         |        |        |        |        |         |         |
--------------------------------------------------------------------------------
| Eiginfjárhlutfall    |  11,0% |  17,0% |  12,5% |  11,8% |   14,3% |   15,7% |
| (CAD)                |        |        |        |        |         |         |
--------------------------------------------------------------------------------
| Eiginfjárhlutfall    | 15,2%  |  22,1% |  17,4% |  12,7% |   10,1% |   11,3% |
| (eiginfjárþáttur A)  |        |        |        |        |         |         |
--------------------------------------------------------------------------------
| Stöðugildi í árslok  |    102 |     71 |     58 |     53 |      54 |      53 |
--------------------------------------------------------------------------------

Ársreikning Icebank hf. 2007 má nálgast á heimasíðu bankans; www.icebank.is.    



Nánari upplýsingar veita:                                                       
Agnar Hansson, bankastjóri Icebank, í síma 540 4000.                            
Breki Karlsson, fjármögnun og fjárfestatengsl, í síma 540 4000.