Ársuppgjör Nýherja hf. fyrir árið 2007. Tekjur og hagnaður jukust um 30% á milli ára • Tekjur á árinu 2007 námu 11.301 mkr, aukning um 2.655 frá fyrra ári • Hagnaður á árinu 420 mkr, var árið áður 306 mkr • EBITDA 706 mkr en var 682 mkr árið áður • Dótturfélög með 141 starfsmenn í Danmörku, Bretlandi og Svíþjóð • Starfsmönnum fjölgaði um 132 á milli ára og voru stöðugildi 482 í lok árs Á stjórnarfundi Nýherja hf. í dag, 18. janúar, samþykkti stjórn félagsins endurskoðaðan ársreikning þess fyrir árið 2007. Tekjur aukast mikið Tekjur Nýherja námu 11.301 mkr og hækkuðu um 2.655 mkr frá fyrra ári sem er 31% tekjuaukning milli ára. Hagnaður eftir skatta var 420 mkr, en var árið áður 301 mkr. Hagnaður samstæðunnar fyrir fjármagnsgjöld og afskriftir - EBITDA - nam 706 mkr, en var 682 mkr árið áður. Kostnaður við uppbyggingu erlendra dótturfélaga veldur því að EBITDA hlutfallið lækkar á milli ára úr 7,9% í 6,2%. Launakostnaður samstæðunnar jókst nokkuð á milli ára vegna fjölgunar starfsmanna og kaupa á nýrri starfsemi. Launakostnaður á árinu var 3.295 mkr, en nam árið áður 2.408 mkr. Hækkun launakostnaðar er að mestu tilkomin vegna kaupa á starfsemi Dansupport í Danmörku og fjölgunar vegna uppbyggingar nýrrar starfsemi AppliCon erlendis. Meðalfjöldi stöðugilda hjá Nýherja og dótturfélögum var 446 árið 2007, sem er aukning um 109 frá árinu á undan. Í árslok voru stöðugildi 482 en heildarstarfsmannafjöldi 501. Fjórði ársfjórðungur Tekjur Nýherja og dótturfélaga á fjórða ársfjórðungi námu 3.525 mkr og jukust því um 820 mkr frá fyrra ári. Hagnaður í ársfjórðungnum var 118 mkr samanborið við 68 mkr í sama ársfjórðungi árið áður. Hagnaður fyrir fjármagnsgjöld og afskriftir - EBIDTA - nam 221 mkr samanborið við 173 mkr í sama fjórðungi árið áður. Um rekstur Stefna Nýherja er að vera markaðsdrifið þekkingarfyrirtæki í upplýsingatækni og markmiðið er að veita viðskiptavinum úrvalsráðgjöf og þjónustu fyrir þær lausnir sem fyrirtækið býður. Stefna Nýherja er jafnframt að fjárfesta hérlendis og á völdum mörkuðum í Norður-Evrópu, einkum í fyrirtækjum sem starfa á sviði þjónustu og ráðgjafar í upplýsingatækni þar sem ná má samlegð við aðra starfsemi innan samstæðunnar. Í samræmi við þessa stefnu keypti Nýherji í maí tækni- og þjónustufyrirtækið Dansupport A/S sem er með höfuðstöðvar í Óðinsvéum í Danmörku. Árið 2007 var jafnframt fyrsta heila starfsár AppliCon Solutions Ltd i Bretlandi, AppliCon Solutions A/S í Danmörku og AppliCon A/B í Svíþjóð. Vegna uppbyggingar á þessum fjórum einingum og þróunar þeirra á lausnum voru á annað hundrað milljónir króna gjaldfærðar í rekstraruppgjöri ársins. Þórðar Sverrissonar, forstjóra Nýherja: Staða Nýherja á íslenska markaðnum hefur styrkst mjög á árinu. Góður innri vöxtur móðurfélagsins, sem nam 22% á síðasta ári, skilaði sér í bættri afkomu og studdi við frekari uppbyggingu á starfssemi félagsins erlendis. Árangurinn á íslenska markaðnum má m.a. þakka nánu samstarfi við stærstu viðskiptavini félagsins og vandaða söluráðgjöf til þeirra.” Mikil sala á netþjónum og IP lausnum Rekstur Kjarnalausna Nýherja gekk ágætlega á árinu og námu tekjur sviðsins ríflega 3.300 mkr. Sala netþjóna gekk vel og alls jókst um 40% milli ára. Nýherji hefur styrkt stöðu sína til muna á Intel-netþjónamarkaðnum á Íslandi en um 60% allra netþjóna sem Nýherji selur eru IBM blað-netþjónar. Sala á afritunarlausnum IBM og öryggislausnum frá APC var vel umfram áætlanir á árinu. Mikil sala var á sviði IP-lausna og Avaya-símkerfa á árinu. Nýherji hélt áfram að veita íslenskum útrásarfyrirtækjum þjónustu með uppsetningu IP-lausna í starfsstöðvum þeirra erlendis og hefur nú lokið 42 uppsetningum í 15 löndum. Hýsingar- og rekstrarþjónusta félagsins gekk einnig vel á árinu. Félagið fékk marga nýja viðskiptavini á þessu sviði og voru ASKAR Capital og BM Vallá á meðal þeirra. Þjónusta og sala á notendalausnum í vexti Árið 2007 var besta ár í sögu Notendalausnasviðs Nýherja og voru heildartekjur sviðsins ríflega 3.700 mkr. Sala einmenningstölva jókst um 24% milli ára og sala á Rent a prent, alrekstrarlausn fyrir ljósritunarvélar og prentara, fór vel af stað. Mikil söluaukning varð á Canon myndavélum, bæði á smávélum á borð við Ixus og PowerShot, sem og EOS vélum. Þá vann Nýherji ásamt IBM að uppsetningu fyrstu IBM sjálfsafgreiðslustöðva fyrir verslanir hér á landi, sem eru jafnframt þær fyrstu sinnar tegundar á Norðurlöndunum. Í júní s.l. var hljóð- og myndlausnadeild Nýherja færð undir nýja einingu undir heitinu Sense sem hefur aðsetur í Hlíðasmára 3 í Kópavogi. Markmiðið með stofnun Sense er að vera leiðandi í ráðgjöf, hönnun, uppsetningu og þjónustu á sviði stafrænna lausna fyrir fyrirtæki og einstaklinga. Opnuð var glæsileg verslun sem býður fjölbreytt úrval mynd- og hljóðlausna fyrir heimili. AppliCon hlýtur gullvottun SAP AppliCon Holding ehf. er eignarhaldsfélag um eignarhluti Nýherja í fimm AppliCon-félögum. Þar starfa samtals um 180 manns og voru heildartekjur AppliCon um 3.000 mkr. Stærstu starfsstöðvarnar eru á Íslandi og í Danmörku en um 80 manns starfa í hvoru landi. Hjá AppliCon í London og Stokkhólmi starfar um tugur starfsmanna á hvorum stað. AppliCon á Íslandi og í Danmörku hlutu á árinu gullvottun SAP fyrir framúrskarandi árangur í sölu, þjónustu og þróun á SAP-lausnum. Gullvottun er efsta stig vottunarkerfis SAP, en einungis tveir af rúmlega 30 samstarfsaðilum SAP á Norðurlöndum hafa áður náð þeim áfanga. Starfsemi AppliCon ehf. á Íslandi gekk ágætlega. Unnið var að ýmsum SAP-verkefnum á sviði fjárhags- og launalausna, m.a. fyrir Glitni, Kópavogsbæ og Samskip. SAP-fjármálalausnaverkefni voru unnin fyrir Askar Capital, Kaupþing og Avant. Einnig jókst umfang Microsoft-verkefna en m.a. var unnið fyrir Nova, N1 og Marel. Rekstur Applicon A/S í Danmörku gekk ágætlega á árinu. Tekjur félagsins hafa vaxið jafnt og þétt undanfarin ár og var afkoma þess í samræmi við áætlanir. Á árinu var undirritaður einn stærsti SAP samningurinn í Danmörku við veitufyrirtækið DONG Energy um fyrsta áfanga á innleiðingu SAP lausna. Danska viðskiptatímaritið Børsen tilnefndi á árinu AppliCon í hóp „gazellufyrirtækja“, en það eru fyrirtæki sem sýnt hafa fram á óvenju hraðan vöxt undanfarin fjögur ár, samhliða því að skila jákvæðri afkomu. Í ársbyrjun stofnaði AppliCon Holding fyrirtækið AppliCon Solutions A/S, sem sérhæfir sig í þróun staðlaðra lausna, sem eru einfaldar í innleiðingu og viðhaldi. Sala er hafin á „Authorization Process Manager” fyrir SAP lausnir og eru söluhorfur lausnarinnar fyrir 2008 góðar. Á árinu var unnið ötullega að uppbyggingu starfsemi Applicon Solutions Ltd. í Bretlandi og Applicon AB í Svíþjóð. Vegna stofnkostnaðar var nokkur halli á báðum einingum, en gert er ráð fyrir að jafnvægi náist í rekstur félaganna á árinu 2008 með innri vexti eða sameiningum við félög sem starfa á svipuðum vettvangi. ParX ehf. í fjölbreyttum ráðgjafaverkefnum Rekstur ParX gekk mjög vel á árinu og voru tekjur og afkoma umfram áætlanir. Góður árangur náðist í rekstri og hefur ParX byggt upp traust tengsl við viðskiptavini sína og sérþekkingu á þörfum þeirra. Verkefnastaða ParX var góð en fyrirtækið vann fjölbreytt verkefni á árinu bæði hér á landi sem og erlendis. Meðal þeirra var jafnréttislaunaúttekt í samstarfi við Samtök atvinnulífsins og Hagfræðistofnun Háskóla Íslands, alþjóðleg könnun um áhrif hvalveiða á ímynd Íslands og íslenskrar ferðaþjónustu og gerð viðskiptaáætlunar um rafræna þjónustugátt fyrir Ísland.is. Meðal erlendra verkefna var stjórnendamat hjá asísku olíufyrirtæki og þróun verkferla við innleiðingu og stjórnun breytinga fyrir evrópsku flugumferðarstofnunina, Eurocontrol. Fjölgun starfsmanna hjá Dansupport Í maí keypti Nýherji fyrirtækið Dansupport A/S í Óðinsvéum á Fjóni. Í framhaldi af kaupunum var ráðist í umtalsverðar fjárfestingar til að styrkja reksturinn. Opnaðar voru nýjar skrifstofur í Kaupmannahöfn og Kolding, og starfsmönnum fjölgað úr 28 í 42 í lok árs. Aðgerðirnar eru liður í að efla starfsemi Dansupport og auka markaðshlutdeild fyrirtækisins á dönskum upplýsingatæknimarkaði. Unnið að kaupum á TM Software ehf Nýherji undirritaði í október samning um kaup á 77% hlutafár í TM Software ehf. Áreiðanleikakönnun er lokið, en niðurstöður liggja ekki fyrir vegna ólokinna samninga TM Software ehf. við erlenda og innlenda aðila. Stefnt er að því að ljúka samningi við núverandi eigendur TM Software ehf. fyrir lok janúar. Aukinn stöðugleiki í rekstri Aukið hlutfall tekna Nýherja byggir á þjónustu, ráðgjöf og innleiðingu hugbúnaðar. Jafnframt hafa tekjur í erlendri mynt vaxið og eykur hvort tveggja stöðugleika í rekstrarafkomu félagsins. Markmið Nýherja er að færa starfsemi sína enn frekar yfir í sölu á þjónustu og ráðgjöf með frekari fjárfestingum á sviði hugbúnaðarstarfsemi, rekstrarþjónustu, hljóð- og myndlausna, samskiptalausna, samþættingar og ráðgjafar. Félagið væntir þess að nærri 55% tekna á árinu 2008 komi frá hugbúnaði, þjónustu og ráðgjöf en í dag má rekja 44% tekna félagsins til þessara þátta. Á árinu hækkaði markaðsverð hlutabréfa Nýherja um 52,6% og var 5.235 mkr í árslok. Stjórn félagsins hefur samþykkt að leggja til við aðalfund þann 25. janúar 2008 að veitt verði heimild til að auka hlutafé um allt að 65 mkr sem nýtt verði til fjárfestinga í nýjum fyrirtækjum. Horfur Síðustu tvö ár hefur eftirspurn eftir þjónustu upplýsingatæknifyrirtækja farið stöðugt vaxandi á Íslandi,en horfur eru á að nú kunni að hægja á um sinn. Félagið telur sig eiga ágæt sóknarfæri í dótturfélögum á erlendum mörkuðum. Áætlanir samstæðunnar fyrir árið 2008 gera ráð fyrir svipuðum rekstrarárangri og á liðnu ári. Um Nýherja hf. Hlutverk Nýherja hf. er að skapa viðskiptavinum sínum virðisauka með þekkingu starfsmanna á upplýsingatækni, rekstri fyrirtækja og þörfum viðskiptavina. Nýherji býður fyrsta flokks ráðgjöf og fagþjónustu á sviði upplýsingatækni og vandaðan tölvu-, skrifstofu- og hugbúnað ásamt traustri tækni- og rekstrarþjónustu. Félög Nýherja samstæðunnar eru 14 bæði hér heima og erlendis og voru stöðugildi í árslok 482. Hlutabréf Nýherja hf. eru skráð í OMX Kauphöll Íslands. Stjórn félagsins skipa Benedikt Jóhannesson, formaður, Árni Vilhjálmsson og Guðmundur Jóh. Jónsson. Forstjóri Nýherja er Þórður Sverrisson og veitir hann nánari upplýsingar í síma 569-7711 eða 893-3630. Heimasíða Nýherja er www.nyherji.is