2007


Ársuppgjör Nýherja hf. fyrir árið 2007.


Tekjur og hagnaður jukust um 30% á milli ára

•  Tekjur á árinu 2007 námu 11.301 mkr, aukning um 2.655 frá fyrra ári

•  Hagnaður á árinu 420 mkr, var árið áður 306 mkr 

•  EBITDA 706 mkr en var 682 mkr árið áður

•  Dótturfélög með 141 starfsmenn í Danmörku, Bretlandi og Svíþjóð

•  Starfsmönnum fjölgaði um 132 á milli ára og voru stöðugildi 482 í lok árs


Á stjórnarfundi Nýherja hf. í dag, 18. janúar, samþykkti stjórn félagsins
endurskoðaðan ársreikning þess fyrir árið 2007. 

Tekjur aukast mikið
Tekjur Nýherja námu 11.301 mkr og hækkuðu um 2.655 mkr frá fyrra ári sem er 31%
tekjuaukning milli ára.  Hagnaður eftir skatta var 420 mkr, en var árið áður
301 mkr.  Hagnaður samstæðunnar fyrir fjármagnsgjöld og afskriftir - EBITDA -
nam 706 mkr, en var 682 mkr árið áður.  Kostnaður við uppbyggingu erlendra
dótturfélaga veldur því að EBITDA hlutfallið lækkar á milli ára úr 7,9% í 6,2%. 
Launakostnaður samstæðunnar jókst nokkuð á milli ára vegna fjölgunar
starfsmanna og kaupa á nýrri starfsemi.  Launakostnaður á árinu var 3.295 mkr,
en nam árið áður 2.408 mkr. Hækkun launakostnaðar er að mestu tilkomin vegna
kaupa á starfsemi Dansupport í Danmörku og fjölgunar vegna uppbyggingar nýrrar
starfsemi AppliCon erlendis.   Meðalfjöldi stöðugilda hjá Nýherja og
dótturfélögum var 446 árið 2007, sem er aukning um 109 frá árinu á undan.   Í
árslok voru stöðugildi 482 en heildarstarfsmannafjöldi 501. 

Fjórði ársfjórðungur
Tekjur Nýherja og dótturfélaga á fjórða ársfjórðungi námu 3.525 mkr og jukust
því um 820 mkr frá fyrra ári.  Hagnaður í ársfjórðungnum var 118 mkr samanborið
við 68 mkr í sama ársfjórðungi árið áður. Hagnaður fyrir fjármagnsgjöld og
afskriftir - EBIDTA - nam 221  mkr samanborið við 173 mkr í sama fjórðungi árið
áður. 

Um rekstur
Stefna Nýherja er að vera markaðsdrifið þekkingarfyrirtæki í upplýsingatækni og
markmiðið er að veita viðskiptavinum úrvalsráðgjöf og þjónustu fyrir þær
lausnir sem fyrirtækið býður. Stefna Nýherja er jafnframt að fjárfesta
hérlendis og á völdum mörkuðum í Norður-Evrópu, einkum í fyrirtækjum sem starfa
á sviði þjónustu og ráðgjafar í upplýsingatækni þar sem ná má samlegð við aðra
starfsemi innan samstæðunnar. 

Í samræmi við þessa stefnu keypti Nýherji í maí tækni- og þjónustufyrirtækið
Dansupport A/S sem er með höfuðstöðvar í Óðinsvéum í Danmörku.  Árið 2007 var
jafnframt fyrsta heila starfsár AppliCon Solutions Ltd i Bretlandi, AppliCon
Solutions A/S í Danmörku og AppliCon A/B í Svíþjóð.  Vegna uppbyggingar á
þessum fjórum einingum og þróunar þeirra á lausnum voru á annað hundrað
milljónir króna gjaldfærðar í rekstraruppgjöri ársins. 

Þórðar Sverrissonar, forstjóra Nýherja:

Staða Nýherja á íslenska markaðnum hefur styrkst mjög á árinu.   Góður innri
vöxtur móðurfélagsins, sem nam 22% á síðasta ári, skilaði sér í bættri afkomu
og studdi við frekari uppbyggingu á starfssemi félagsins erlendis. Árangurinn á
íslenska markaðnum má m.a. þakka nánu samstarfi við stærstu viðskiptavini
félagsins og vandaða söluráðgjöf til þeirra.” 

Mikil sala á netþjónum og IP lausnum
Rekstur Kjarnalausna Nýherja gekk ágætlega á árinu og námu tekjur sviðsins
ríflega 3.300 mkr.  Sala netþjóna gekk vel og alls jókst um 40% milli ára.
Nýherji hefur styrkt stöðu sína til muna á Intel-netþjónamarkaðnum á Íslandi en
um 60% allra netþjóna sem Nýherji selur eru IBM blað-netþjónar. Sala á
afritunarlausnum IBM og öryggislausnum frá APC var vel umfram áætlanir á árinu. 

Mikil sala var á sviði IP-lausna og Avaya-símkerfa á árinu. Nýherji hélt áfram
að veita íslenskum útrásarfyrirtækjum þjónustu með uppsetningu IP-lausna í
starfsstöðvum þeirra erlendis og hefur nú lokið 42 uppsetningum í 15 löndum. 

Hýsingar- og rekstrarþjónusta félagsins gekk einnig vel á árinu.  Félagið fékk 
marga nýja viðskiptavini á þessu sviði og voru ASKAR Capital og BM Vallá á
meðal þeirra. 

Þjónusta og sala á notendalausnum í vexti
Árið 2007 var besta ár í sögu Notendalausnasviðs Nýherja og voru heildartekjur
sviðsins ríflega 3.700 mkr.  Sala einmenningstölva jókst um 24% milli ára og
sala á Rent a prent, alrekstrarlausn fyrir ljósritunarvélar og prentara, fór
vel af stað.  Mikil söluaukning varð á Canon myndavélum, bæði á smávélum á borð
við Ixus og PowerShot, sem og EOS vélum.  Þá vann Nýherji ásamt IBM að
uppsetningu fyrstu IBM sjálfsafgreiðslustöðva fyrir verslanir hér á landi, sem
eru jafnframt þær fyrstu sinnar tegundar á Norðurlöndunum. 

Í júní s.l. var hljóð- og myndlausnadeild Nýherja færð undir nýja einingu undir
heitinu Sense sem hefur aðsetur í Hlíðasmára 3 í Kópavogi. Markmiðið með
stofnun Sense er að vera leiðandi í ráðgjöf, hönnun, uppsetningu og þjónustu á
sviði stafrænna lausna fyrir fyrirtæki og einstaklinga. Opnuð var glæsileg
verslun sem býður fjölbreytt úrval mynd- og hljóðlausna fyrir heimili. 

AppliCon hlýtur gullvottun SAP
AppliCon Holding ehf. er eignarhaldsfélag um eignarhluti Nýherja í fimm
AppliCon-félögum. Þar starfa samtals um 180 manns og voru heildartekjur
AppliCon um 3.000 mkr. Stærstu starfsstöðvarnar eru á Íslandi og í Danmörku en
um 80 manns starfa í hvoru landi. Hjá AppliCon í London og Stokkhólmi starfar
um tugur starfsmanna á hvorum stað. 

AppliCon á Íslandi og í Danmörku hlutu á árinu gullvottun SAP fyrir
framúrskarandi árangur í sölu, þjónustu og þróun á SAP-lausnum. Gullvottun er
efsta stig vottunarkerfis SAP, en einungis tveir af rúmlega 30 samstarfsaðilum
SAP á Norðurlöndum hafa áður náð þeim áfanga. 

Starfsemi AppliCon ehf. á Íslandi gekk ágætlega.  Unnið var að ýmsum
SAP-verkefnum á sviði fjárhags- og launalausna, m.a. fyrir Glitni, Kópavogsbæ
og Samskip. SAP-fjármálalausnaverkefni voru unnin fyrir Askar Capital, Kaupþing
og Avant. Einnig jókst umfang Microsoft-verkefna en m.a. var unnið fyrir Nova,
N1 og Marel. 

Rekstur Applicon A/S í Danmörku gekk ágætlega á árinu.  Tekjur félagsins hafa
vaxið jafnt og þétt undanfarin ár og var afkoma þess í samræmi við áætlanir.  Á
árinu var undirritaður einn stærsti SAP samningurinn í Danmörku við
veitufyrirtækið DONG Energy um fyrsta áfanga á innleiðingu SAP lausna.  Danska
viðskiptatímaritið Børsen tilnefndi á árinu AppliCon í hóp „gazellufyrirtækja“,
en það eru fyrirtæki sem sýnt hafa fram á óvenju hraðan vöxt undanfarin fjögur
ár, samhliða því að skila jákvæðri afkomu. 

Í ársbyrjun stofnaði AppliCon Holding fyrirtækið AppliCon Solutions A/S, sem
sérhæfir sig í þróun staðlaðra lausna, sem eru einfaldar í innleiðingu og
viðhaldi.  Sala er hafin á „Authorization Process Manager” fyrir SAP lausnir og
eru söluhorfur lausnarinnar fyrir 2008 góðar. 

Á árinu var unnið ötullega að uppbyggingu starfsemi Applicon Solutions Ltd. í
Bretlandi og Applicon AB í Svíþjóð.  Vegna stofnkostnaðar var nokkur halli á
báðum einingum, en gert er ráð fyrir að jafnvægi náist í rekstur félaganna á
árinu 2008 með innri vexti eða sameiningum við félög sem starfa á svipuðum
vettvangi. 

ParX ehf. í fjölbreyttum ráðgjafaverkefnum
Rekstur ParX gekk mjög vel á árinu og voru tekjur og afkoma umfram áætlanir.
Góður árangur náðist í rekstri og hefur ParX byggt upp traust tengsl við
viðskiptavini sína og sérþekkingu á þörfum þeirra. 

Verkefnastaða ParX var góð en fyrirtækið vann fjölbreytt verkefni á árinu bæði
hér á landi sem og erlendis.  Meðal þeirra var jafnréttislaunaúttekt í
samstarfi við Samtök atvinnulífsins og Hagfræðistofnun Háskóla Íslands,
alþjóðleg könnun um áhrif hvalveiða á ímynd Íslands og íslenskrar ferðaþjónustu
og gerð viðskiptaáætlunar um rafræna þjónustugátt fyrir Ísland.is.  Meðal
erlendra verkefna var stjórnendamat hjá asísku olíufyrirtæki og þróun verkferla
við innleiðingu og stjórnun breytinga fyrir evrópsku flugumferðarstofnunina,
Eurocontrol. 

Fjölgun starfsmanna hjá Dansupport
Í maí keypti Nýherji fyrirtækið Dansupport A/S í Óðinsvéum á Fjóni. Í framhaldi
af kaupunum var ráðist í umtalsverðar fjárfestingar til að styrkja reksturinn. 
Opnaðar voru nýjar skrifstofur í Kaupmannahöfn og Kolding, og starfsmönnum
fjölgað úr 28 í 42 í lok árs.  Aðgerðirnar eru liður í að efla starfsemi
Dansupport og auka markaðshlutdeild fyrirtækisins á dönskum
upplýsingatæknimarkaði. 

Unnið að kaupum á TM Software ehf
Nýherji undirritaði í október samning um kaup á 77% hlutafár í TM Software ehf.

Áreiðanleikakönnun er lokið, en niðurstöður liggja ekki fyrir vegna ólokinna
samninga TM Software ehf. við erlenda og innlenda aðila.   Stefnt er að því að
ljúka samningi við núverandi eigendur TM Software ehf. fyrir lok janúar. 

Aukinn stöðugleiki í rekstri
Aukið hlutfall tekna Nýherja byggir á þjónustu, ráðgjöf og innleiðingu
hugbúnaðar. Jafnframt hafa tekjur í erlendri mynt vaxið og eykur hvort tveggja
stöðugleika í rekstrarafkomu félagsins. Markmið Nýherja er að færa starfsemi
sína enn frekar yfir í sölu á þjónustu og ráðgjöf með frekari fjárfestingum á
sviði hugbúnaðarstarfsemi, rekstrarþjónustu, hljóð- og myndlausna,
samskiptalausna, samþættingar og ráðgjafar.   Félagið væntir þess að nærri 55%
tekna á árinu 2008 komi frá hugbúnaði, þjónustu og ráðgjöf en í dag má rekja
44% tekna félagsins til þessara þátta. Á árinu hækkaði markaðsverð hlutabréfa
Nýherja um 52,6% og var  5.235 mkr í árslok. Stjórn félagsins hefur samþykkt að
leggja til við aðalfund þann 25. janúar 2008 að veitt verði heimild til að auka
hlutafé um allt að 65 mkr sem nýtt verði til fjárfestinga í nýjum fyrirtækjum. 

Horfur
Síðustu tvö ár hefur eftirspurn eftir þjónustu upplýsingatæknifyrirtækja farið
stöðugt vaxandi á Íslandi,en  horfur eru á að nú kunni að hægja á um sinn. 
Félagið telur sig eiga ágæt sóknarfæri í  dótturfélögum á erlendum mörkuðum.
Áætlanir samstæðunnar fyrir árið 2008 gera ráð fyrir svipuðum rekstrarárangri
og á liðnu ári. 

Um Nýherja hf.	
Hlutverk Nýherja hf. er að skapa viðskiptavinum sínum virðisauka með þekkingu
starfsmanna á upplýsingatækni, rekstri fyrirtækja og þörfum viðskiptavina.
Nýherji býður fyrsta flokks ráðgjöf og fagþjónustu á sviði upplýsingatækni og
vandaðan tölvu-, skrifstofu- og hugbúnað ásamt traustri tækni- og
rekstrarþjónustu. Félög Nýherja samstæðunnar eru 14 bæði hér heima og erlendis
og voru stöðugildi í árslok 482. Hlutabréf Nýherja hf. eru skráð í OMX Kauphöll
Íslands. 

Stjórn félagsins skipa Benedikt Jóhannesson, formaður, Árni Vilhjálmsson og
Guðmundur Jóh. Jónsson. Forstjóri Nýherja er Þórður Sverrisson og veitir hann
nánari upplýsingar í síma 569-7711 eða 893-3630. Heimasíða Nýherja er
www.nyherji.is

Attachments

nyherji.lykiltolur.31.12.2007.pdf nyherji arsreikningur 31.12. 2007.pdf