Aðalfundur Nýherja hf. verður haldinn föstudaginn 25. janúar 2008 í ráðstefnusal félagsins, Borgartúni 37, og hefst fundurinn kl. 16:00. Á dagskrá fundarins verða: 1. Venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt gr. 4.5 í samþykktum félagsins. 2. Tillaga um heimild stjórnar um aukningu hlutafjár sbr. 41. gr. hlutafélagalaga. Tillaga um breytingu á grein 2.1. í samþykktum um heimild til handa stjórnar til aukningar hlutafjár í Nýherja hf., lögð fram á aðalfundi félagsins 25. janúar 2008. Aðalfundur Nýherja hf. haldinn 25. janúar 2008 samþykkir eftirfarandi breytingu á grein 2.1. samþykkta félagsins: Stjórn félagsins er heimilt, sbr. 41. gr. Hlutafélagalaga nr. 2/1995, m.s.br., að auka hlutafé félagsins um allt að kr. 65 milljónir með útgáfu nýrra hluta og ráðstafa með eftirfarandi hætti: • Allt að kr. 25 milljónir til greiðslu fyrir hlutafé í TM Software ehf. Falla núverandi hluthafar frá forkaupsrétti sínum til kaupa á hlutum þessum. • Allt að kr. 40 milljónir ætlaðar til sölu til núverandi hluthafa og starfsmanna innan Nýherja samstæðunnar. Útboðsgengi á þessu hlutafé verði 22, og skal stjórn félagsins ákveða sölureglur fyrir hlutaféð. Skal áskrift fara fram samkvæmt ákvæðum samþykkta félagsins og V. kafla Hlutafélagalaga. Engar hömlur skulu vera á viðskiptum með hina nýju hluti umfram hömlur á öðrum hlutum í félaginu. Hinir nýju hlutir skulu veita réttindi í félaginu frá skráningardegi hlutafjárhækkunarinnar. Heimild þessi til stjórnar Nýherja hf. gildir í níu mánuði frá samþykkt hennar. 3. Tillaga um heimild félagsins til kaupa á eigin hlutum, sbr. 55 gr. hlutafélagalaga. Aðalfundur Nýherja haldinn 25. janúar 2008 samþykkir heimild til handa stjórn félagsins til að kaupa allt að 10% af nafnverði hlutafjár félagsins, sbr. VIII. kafla laga nr. 2/1995 um hlutafélög. Kaupgengi hluta má ekki vera meira en 20% hærra eða lægra en síðasta skráða gengi á Kauphöll Íslands. Gildistími heimildarinnar er allt að átján mánuðir. 4. Stjórn félagsins leggur til að greiddur verði 0,60 kr.í arð til hluthafa á árinu 2008 vegna rekstrarársins 2007 eða 133.921 mkr. 5. Önnur mál, löglega upp borin. Atkvæðaseðlar og fundargögn verða afhent á fundarstað. Hluthafar sem ekki geta sótt fundinn, en hyggjast gefa umboð, verða að gera það skriflega. Ársreikningur og tillögur sem lagðar verða fram á fundinum verða settar á vef félagsins, www.nyherji.is, þann 18. janúar nk.