Kaupþing banki („Kaupþing”) hefur selt starfsemi sína í Færeyjum til Eik Banki P/F. Eik Banki tekur yfir starfsemi Kaupþings í Færeyjum þann 31. desember 2007. Starfsemi Kaupþings í Færeyjum, sem hófst árið 2000, hefur einkum snúist um miðlun verðbréfa, eignastýringu, útlán og aðra hefðbundina fjárfestingabankastarfsemi. Undanfarin ár hefur starfsemin í Færeyjum gengið vel en þar starfa nú um 30 manns. Eik Banki greiðir fyrir starfsemina með reiðufé og mun yfirtaka innlán Kaupþings í Færeyjum sem og megnið af þeim lánum sem bankinn hefur veitt þar. Áhrif sölunnar á rekstur og efnahag Kaupþings eru óveruleg. Salan er háð venjubundnum fyrirvörum af hálfu kaupanda og seljanda. Hreiðar Már Sigurðsson forstjóri Kaupþings „Starfsemin í Færeyjum hefur gengið vel síðustu ár og ég er þess fullviss að svo verði áfram hjá nýjum eigendum. Með fjölgun starfsstöðva Kaupþings á meginlandi Evrópu var sú ákvörðun tekin að selja starfsemina. Ég vil nota tækifærið og þakka Peter Holm, framkvæmdastjóra, og öðru starfsfólki í Færeyjum fyrir sérlega ánægjulegt samstarf og afar góðan árangur.“ Nánari upplýsingar veitir: Jónas Sigurgeirsson, Framkvæmdastjóri Samskiptasviðs Kaupþings, í síma 444 6112