Landsbankinn hf.: Útboð sértryggðra skuldabréfa


Landsbankinn mun halda lokað útboð á sértryggðum skuldabréfum miðvikudaginn 17. apríl kl. 15:00. Boðinn verður til sölu verðtryggði flokkurinn LBANK CBI 30.

Áætlaður uppgjörsdagur er 24. apríl 2024.

Lánshæfiseinkunn sértryggðra skuldabréfa Landsbankans er A+ með stöðugum horfum samkvæmt mati S&P.

Markaðsviðskipti Landsbankans hafa umsjón með útboðinu. Hægt er að nálgast nánari upplýsingar í síma 410-7330 eða með tölvupósti, verdbrefamidlun@landsbankinn.is.