Lánasjóður sveitarfélaga - Undirritun aðalmiðlarasamninga


Lánasjóður sveitarfélaga ohf. hefur gengið frá samningum við aðalmiðlara í tengslum við útgáfu skuldabréfa Lánasjóðsins og viðskiptavakt á skuldabréfaflokkunum LSS150434, LSS151155 og LSS 39 0303. Markmiðið með samningunum er að styrkja aðgang Lánasjóðsins að lánsfé og efla verðmyndun á eftirmarkaði.

Frá 1. apríl 2024 hafa fjórar fjármálastofnanir heimild til að kalla sig: "Aðalmiðlara með skuldabréf Lánasjóðsins". Þær eru: Arion banki hf, Íslandsbanki hf., Landsbankinn hf. og Kvika banki hf.

Helstu atriði samningsins eru:

  • Aðalmiðlarar hafa einir aðgang að útboðum Lánasjóðs sveitarfélaga ohf.
  • Aðalmiðlari skuldbindur sig til að setja fram markaðsmyndandi tilboð í útboðum skuldabréfa lánasjóðsins að lágmarki 100 m.kr. að nafnverði samanlagt í þá flokka sem í boði eru í hverju útboði, að hámarki þó einu sinni í hverjum mánuði.
  • Aðalmiðlarar hafa einir aðgang að sérstökum verðbréfalánum sem Lánasjóðurinn veitir.
  • Aðalmiðlari er viðskiptavaki á eftirmarkaði fyrir þrjá skuldabréfaflokka Lánasjóðsins og setur fram kaup- og sölutilboð að lágmarki sem hér segir:

SkuldabréfaflokkurTilboðsskylda (nafnv.)
LSS15043440 m.kr.
LSS15115520 m.kr.
LSS 39 030340 m.kr.


  • Aðalmiðlari skuldbindur sig til þess að verðmunur kaup- og sölutilboða hans fari ekki yfir 1% fyrir LSS150434 og LSS 39 0303 en 1,25% fyrir LSS151155.
  • Aðalmiðlara er skylt að endurnýja tilboð sín innan 15 mínútna frá því að þeim hefur verið tekið. Ef aðalmiðlari á viðskipti á einum viðskiptadegi fyrir samtals 200 m.kr. að nafnvirði með þá flokka lánasjóðsins sem viðskiptavakt er með er honum heimilt að víkja út frá hámarksmun kaup- og sölutilboða.
  • Samningarnir gilda frá 1. apríl 2024 til 31. mars 2025.


Nánari upplýsingar veitir:
Óttar Guðjónsson
Sími: 515 4949
Netfang: ottar@lanasjodur.is

Viðhengi



Attachments

2024-03-22 Aðalmiðlarasamningur LSS 2024 - Sýnishorn 2024-03-22 Aðalmiðlarasamningur LSS viðauki 2024 - Sýnishorn