Ársreikningur Jeratúns ehf. árið 2023


Ársreikningur Jeratúns ehf. er gerður í samræmi við nýja og endurbætta staðla (IFRS/IAS) og túlkanir (IFRIC).

Ársreikningur Jeratúns ehf. fyrir árið 2023 var staðfestur af stjórn félagsins í dag, 22. mars 2024.

Jeratún ehf. er einkafyrirtæki í eigu Grundarfjarðarbæjar, Snæfellsbæjar og Sveitarfélagsins Stykkishólms og bera þau ábyrgð á skuldbindingum þess. Hlutverk félagsins er bygging og rekstur skólahúsnæðis Fjölbrautaskóla Snæfellinga í Grundarfirði. Starfsemi félagsins flokkast því undir að vera á vettvangi sveitarfélaga.

Hagnaður félagsins á árinu 2023 var 58.928 þús. kr. og í lok þess var eigið fé jákvætt sem nemur 459.623 þús. kr. skv. ársreikningi.

Lántaka félagsins er vegna fjármögnunar framkvæmda við Fjölbrautaskóla Snæfellinga. Sveitarfélögin ásamt ríkinu greiða húsaleigu sem á að standa undir afborgunum og vöxtum af lánum. Í lok ársins námu eftirstöðvar lána um 43,4 millj. kr. og voru eftirstöðvar í skilum. Sveitarfélögin bera hlutfallslega ábyrgð á greiðslu lánanna.

Félagið er með leigusamning við Menntamálaráðuneytið og sveitarfélögin á Snæfellsnesi vegna fasteignarinnar til 31. júlí 2024. Núverandi leigugreiðslur eru 84.050 þús. kr. á ársgrundvelli og eru verðtryggðar með vísitölu neysluverðs.

Jakob Björgvin Jakobsson, er stjórnarformaður Jeratúns ehf. og veitir frekari upplýsingar um starfsemi þess og stöðu.

Jeratún ehf.

Lykiltölur úr ársreikningum 2018-2022

Rekstrarreikningur20232022202120202019
Tekjur84.05077.11071.68468.79167.018
Rekstrargjöld-17.201-7.671-7.709-9.014-7.017
Afskriftir-4.525-4.523-4.510-4.507-4.495
Fjármunatekjur og fjármagnsgjöld-3.396-13.094-12.519-13.613-15.608
      
Hagnaður fyrir skatta58.92851.82246.94641.65739.898
Tekjuskattur0013.159-8.335-4.824
Hagnaður ársins58.92851.82260.10533.32235.074
      
Efnahagsreikningur     
Fastafjármunir410.974414.333417.918422.163425.801
Veltufjármunir105.41279.44353.40832.33332.931
Eignir samtals516.386493.776471.326454.496458.732
      
Eigið fé459.623400.695348.873288.768255.446
Langtímaskuldir og skuldbindingar12.76851.83584.260127.422150.011
Skammtímaskuldir43.99541.24638.19338.30653.275
Eigið fé og skuldir samtals516.386493.776471.326454.496458.732
      
Yfirlit um sjóðstreymi     
Handbært fé frá (til) rekstri70.65561.63058.79852.32243.411
Fjárfestingahreyfingar00000
Fjármögnunarhreyfingar-41.709-38.211-35.673-50.737-45.449
Handbært fé í árslok104.31275.36651.94828.82327.238
      
Kennitölur     
Veltufjárhlutfall2,401,931,400,840,62
Eiginfjárhlutfall89,01%81,15%74,02%63,54%55,69%

Viðhengi



Attachments

Jeratún ehf 2023 kt. 501203-2030