Árshlutareikningur Jeratúns ehf. 1. janúar – 30. júní 2023


Árshlutareikningur Jeratúns ehf. er gerður í samræmi við alþjóðlegan reikningsskilastaðal um árshlutareikninga, IAS 34, eins og hann hefur verið samþykktur af Evrópusambandinu.

Árshlutareikningur Jeratúns ehf. fyrir tímabilið 1. janúar til 30. júní 2023 var staðfestur af stjórn félagsins í dag, 25. ágúst 2023.

Jeratún ehf. er einkafyrirtæki í eigu Grundarfjarðarbæjar, Snæfellsbæjar og Sveitarfélagsins Stykkishólms og bera þau ábyrgð á skuldbindingum þess. Hlutverk félagsins er bygging og rekstur skólahúsnæðis Fjölbrautaskóla Snæfellinga í Grundarfirði. Starfsemi félagsins flokkast því undir að vera á vettvangi sveitarfélaga.

Hagnaður félagsins á fyrri hluta ársins 2023 nam 29.840 þús. kr. og í lok tímabilsins var eigið fé jákvætt um sem nam 430.535 þús. kr. samkvæmt árshlutareikningi. Hlutafé var ekki aukið á tímabilinu.

Lántaka félagsins er vegna fjármögnunar framkvæmda við Fjölbrautaskóla Snæfellinga. Sveitarfélögin ásamt ríkinu greiða húsaleigu sem á að standa undir afborgunum og vöxtum af lánum. Í lok tímabilsins námu eftirstöðvar lána um 64 millj. kr. og voru eftirstöðvar í skilum. Sveitarfélögin bera hlutfallslega ábyrgð á greiðslu lánanna.

Félagið er með leigusamning við menntamálaráðuneytið og sveitarfélögin á Snæfellsnesi vegna fasteignarinnar til 31. júlí 2024. Núverandi leigugreiðslur eru 84.801 þús. kr. á ársgrundvelli og eru verðtryggðar með vísitölu neysluverðs.

Jakob B. Jakobsson, er stjórnarformaður Jeratúns ehf. og veitir frekari upplýsingar um starfsemi þess og stöðu.

Viðhengi



Attachments

Jeratún ehf 1 1-30 6 2023 - Árshlutareikningur IFRS