Afkoma Norðurslóðar 4 á fyrri árshelmingi 2023


Stjórn Norðurslóðar 4 ehf. hefur samþykkt árshlutareikning vegna fyrri árshelmings 2023. 

  • Leigutekjur á fyrri árshelmingi 2023 voru 105 millj. kr. (2022: 95 millj. kr.)
  • Rekstrarhagnaður fyrir matsbreytingu (NOI) nam 86 millj. kr. (2022: 77 millj.kr.)
  • Matsbreyting fjárfestingareigna nam 139 millj. kr. til hækkunar (2022: 185 millj. kr.)
  • Hagnaður á fyrri árshelmingi 2023 nam 86 millj. kr. (2022: 132 millj. kr)
  • Virði fjárfestingareigna var 2.432 millj. kr. þann 30.6.2023 (31.12.2022: 2.291 millj. kr.)
  • Eiginfjárhlutfall félagsins þann 30.6.2023 var 19,7% samanborið við 17,3% í árslok 2022.

Uppgjör Norðurslóðar 4 ehf. verður framvegis birt þremur virkum dögum á eftir birtingu sex mánaða og ársuppgjörs móðurfélagsins.

Upplýsingar um afkomu samstæðu Reita fasteignafélags hf. má finna á www.reitir.is/fjarfestar. Upplýsingar veitir Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, í síma 669 4416 eða í netfanginu einar@reitir.is.

Viðhengi



Attachments

Norðurslóð 4 ehf. árshlutareikningur 30.06.2023