Ársreikningur Jeratúns ehf. árið 2021


Ársreikningur Jeratúns ehf. er gerður í samræmi við nýja og endurbætta staðla (IFRS/IAS) og túlkanir (IFRIC).

Ársreikningur Jeratúns ehf. fyrir árið 2021 var staðfestur af stjórn félagsins í dag, 30. mars 2022.

Jeratún ehf. er einkafyrirtæki í eigu Grundarfjarðarbæjar, Helgafellssveitar, Snæfellsbæjar og Stykkishólmsbæjar og bera þau ábyrgð á skuldbindingum þess. Hlutverk félagsins er bygging og rekstur skólahúsnæðis Fjölbrautaskóla Snæfellinga í Grundarfirði. Starfsemi félagsins flokkast því undir að vera á vettvangi sveitarfélaga.

Hagnaður félagsins á árinu 2021 var 60.105 þús. kr. og í lok þess var eigið fé jákvætt sem nemur 348.873 þús. kr. skv. ársreikningi. Stjórnin mun ekki leggja til við hluthafafund félagsins að hlutafé verði aukið.

Lántaka félagsins er vegna fjármögnunar framkvæmda við Fjölbrautaskóla Snæfellinga. Sveitarfélögin ásamt ríkinu greiða húsaleigu sem á að standa undir afborgunum og vöxtum af lánum. Í lok ársins námu eftirstöðvar lána um 110 millj. kr. og voru eftirstöðvar í skilum. Sveitarfélögin bera hlutfallslega ábyrgð á greiðslu lánanna.

Félagið er með leigusamning við Menntamálaráðuneytið og sveitarfélögin á Snæfellsnesi vegna fasteignarinnar til 31. júlí 2024. Núverandi leigugreiðslur eru 71.684 þús. kr. á ársgrundvelli og eru verðtryggðar með vísitölu neysluverðs.

Jakob Björgvin Jakobsson, er stjórnarformaður Jeratúns ehf. og veitir frekari upplýsingar um starfsemi þess og stöðu.

Viðhengi



Attachments

Jeratún ehf 2021 kt. 501203-2030