Skeljungur hf.: Aðalfundur 10. mars 2022 – framboð til stjórnar og tilnefningarnefndar og krafa um margfeldiskosningu


Aðalfundur Skeljungs hf. verður haldinn þann 10. mars 2022 kl. 16:00 í Ballroom salnum í Reykjavík Edition, Austurbakka 2, 101 Reykjavík.

Framboðsfrestur til stjórnar og tilnefningarnefndar Skeljungs hf. er runninn út. Eftirtaldir aðilar hafa gefið kost á sér í stjórn félagsins:

  • Birna Ósk Einarsdóttir
  • Jón Ásgeir Jóhannesson
  • Nanna Björk Ásgrímsdóttir
  • Sigurður Kristinn Egilsson
  • Þórarinn Arnar Sævarsson
  • Guðbjörg Heiða Guðmundsdóttir
  • Sigríður Olgeirsdóttir

Nánari upplýsingar um frambjóðendur og tillögu tilnefninganefndar er að finna í viðhengi og á heimasíðu Skeljungs: Hluthafafundir 2022 | Skeljungur 

Samkvæmt samþykktum félagsins skal stjórn þess skipuð fimm einstaklingum og skal hlutfall hvors kyns innan stjórnar ekki vera lægra en 40%.

Stjórn Skeljungs hf. barst krafa um að beitt verði margfeldiskosningu við kjör stjórnar Skeljungs hf. Krafan barst stjórn innan tilskilins frests og barst frá hluthöfum sem hafa yfir að ráða meira en 1/10 hlutafjárins, sbr. 7. mgr. 63. gr. laga um hlutafélög nr. 2/1995. Margfeldiskosningu verður því beitt við stjórnarkjörið á fundinum.

Margfeldiskosning fer fram með eftirfarandi hætti: Kosið skal á milli einstaklinga. Gildi hvers atkvæðis skal margfaldað með fjölda þeirra stjórnarmanna sem kjósa skal og má hluthafi skipta atkvæðamagni sínu, þannig reiknuðu, í hverjum þeim hlutföllum, sem hann sjálfur kýs, á jafnmarga menn og kjósa skal eða færri. Ef ekki er á atkvæðaseðli getið skiptingar atkvæða á milli þeirra sem þau eru greidd skal þeim skipt að jöfnu.

Framboðsfrestur til setu í tilnefningarnefnd félagsins er einnig runninn út. Eftirfarandi einstaklingar eru í framboði til tilnefningarnefndar:

  • Katrín S. Óladóttir
  • Sigurður Kári Árnason

Samkvæmt starfsreglum tilnefningarnefndar skal hluthafafundur kjósa tvo nefndarmenn en nýkjörin stjórn félagsins skipar einn úr stjórn í nefndina í kjölfar aðalfundar. Katrín og Sigurður verða því sjálfkjörin til setu í nefndinni.

Öll fundargögn má finna á heimasíðu félagsins: Hluthafafundir 2022 | Skeljungur

Skráning á aðalfundinn á fundarstað er frá kl. 15:00 á fundardegi.

Nánari upplýsingar veitir Ólafur Þór Jóhannesson, forstjóri, fjarfestar@skeljungur.is.

www.skeljungur.is
https://www.linkedin.com/company/skeljungur-hf/

Viðhengi



Attachments

Skýrsla tilnefningarnefndar Framboð til tilnefningarnefnda-ISL