Skeljungur hf.: Auglýsing frá tilnefningarnefnd um framboð til stjórnar Skeljungs hf. Breyttar dagsetningar.


Í ljósi breyttrar dagsetningar aðalfundar Skeljungs auglýsir tilnefningarnefnd Skeljungs hf. að nýju eftir tilnefningum eða framboðum til stjórnar félagsins vegna aðalfundarins, sem haldinn verður 10. mars 2022.

Hlutverk tilnefningarnefndar er að hafa ráðgefandi hlutverk við val á stjórnarmönnum og leggur nefndin tillögur þess efnis fyrir aðalfund félagsins. Markmið með skipun tilnefningarnefndar er að koma á gagnsæju og skýru fyrirkomulagi tilnefninga stjórnarmanna á aðalfundi félagsins, sem m.a. skapar hluthöfum þess forsendur fyrir upplýstri ákvarðanatöku. Hlutverk nefndarinnar er að tryggja að stjórn félagsins hafi yfir að búa breidd í hæfni, reynslu og þekkingu. Jafnframt að færni stjórnarmanna sé af þeim toga að hún nýtist félaginu og dótturfélögum þess.

Allir stjórnarmenn þurfa að fullnægja þeim skilyrðum sem fram koma í samþykktum félagsins og lögum um hlutafélög nr. 2/1995, sbr. 66. gr. laganna. Starfsreglur tilnefningarnefndar, samþykktir félagsins og önnur gögn eru aðgengileg á heimasíðu Skeljungs.

Óskað er eftir að tilnefningum eða framboðum sé skilað til tilnefningarnefndar, sjá meðfylgjandi eyðublað, eigi síðar en 3. febrúar 2022 með tölvupósti á netfangið tilnefningarnefnd@skeljungur.is. Nefndin mun bjóða frambjóðendum að funda með sér á tímabilinu 8.-10. febrúar 2022.

Tillaga nefndarinnar að stjórn verður send út ásamt öðrum tillögum til aðalfundar þann 17. febrúar 2022. Rétt er þó að geta þess að nefndin áskilur sér rétt til þess að endurskoða tillögu sína þar til tíu dögum fyrir aðalfund. Lokafrestur til framboðs er fimm dögum fyrir aðalfund en nefndin mun ekki geta lagt mat á framboð sem berast eftir að tvær vikur eru til fundarins, sem haldinn verður þann 10. mars 2022. Upplýsingar um alla frambjóðendur verða birtar á heimasíðu félagsins eigi síðar en tveimur sólarhringum fyrir aðalfund.

Mikilvægar dagsetningar:
3. febrúar: Tilnefningarnefnd óskar eftir að tilnefningar/framboð séu send fyrir lok þessa dags
8.-10. febrúar: Viðtöl tilnefningarnefndar við frambjóðendur
17. febrúar: Skýrsla og tillaga tilnefningarnefndar send út ásamt fundarboði til aðalfundar
24. febrúar: Tilnefningarnefnd leggur ekki mat á framboð sem berast eftir kl. 16:00 þennan dag
28. febrúar: Frestur tilnefningarnefndar til að endurskoða tillögu sínar og senda út rennur út
5. mars: Framboðsfrestur rennur út kl. 16:00
8. mars: Eigi síðar en þennan dag skal birta endanleg framboð
10. mars: Aðalfundur Skeljungs 2022

Viðhengi



Attachments

Form fyrir frambod til stjornar Skeljungs hf. 2022