Afkoma Norðurslóðar 4 ehf. á árinu 2019


Stjórn Norðurslóðar 4 ehf. samþykkti ársreikning vegna ársins 2019 þann 17. febrúar 2020.

Lykiltölur reikningsins eru eftirfarandi:

  • Rekstrartekjur á árinu námu 165 millj. kr. (2018: 159 millj. kr.)
  • Rekstrarhagnaður fyrir matsbreytingu (NOI) ársins nam 131 millj. kr. (2018: 122 millj. kr.)
  • Matshækkun fjárfestingareigna nam 245 millj. kr. (2018: 59 millj. kr.)
  • Hagnaður ársins nam 236 millj. kr. (2018: 81 millj. kr.)
  • Virði fjárfestingareigna var 1.935 millj. kr. í árslok (2018: 1.616 millj. kr)
  • Eiginfjárhlutfall var 29,4% í árslok (2018: 25,6%)

Upplýsingar um afkomu samstæðunnar má finna á www.reitir.is/fjarfestar. Frekari upplýsingar veitir Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, í síma 669 4416 eða í netfanginu einar@reitir.is.

Viðhengi


Attachments

Nordurslod-4-IFRS-2019-arsreikningur