Afkoma Norðurslóðar 4 ehf. á fyrri árshelmingi 2019


Stjórn Norðurslóðar 4 ehf. hefur samþykkt árshlutareikning vegna fyrri árshelmings 2019.

  • Leigutekjur á fyrri árshelmingi 2019 voru 82 millj. kr. (2018: 79 millj. kr.)
  • Rekstrarhagnaður fyrir matsbreytingu (NOI) nam 66 millj. kr. á fyrri árshelmingi (2018: 59 millj. kr.)
  • Matshækkun fjárfestingareigna nam 21 millj. kr. (2018: 29 millj. kr.)
  • Hagnaður á fyrri helmingi ársins 2019 nam 36 millj. kr. (2018: 39 millj. kr.)
  • Virði fjárfestingareigna var 1.712 millj. kr. (31.12.2018: 1.616 millj. kr.)
  • Eiginfjárhlutfall félagsins þann 30.6.2019 var 26,3% samanborið við 25,6% í árslok 2018.

Upplýsingar um afkomu samstæðunnar má finna á www.reitir.is/fjarfestar. Frekari upplýsingar veitir Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, í síma 669 4416 eða í netfanginu einar@reitir.is.

Viðhengi


Attachments

Norðurslóð 4 ehf. árshlutareikningur 30.06.2019