SIV Fjármögnun: Stækkun á skuldabréfaflokknum SIV 17 1


SIV Fjármögnun hefur lokið stækkun á skuldabréfaflokknum SIV 17 1. Skuldabréfin bera breytilega 3M REIBOR vexti auk 3% álags og voru seld á pari.

Seld voru skuldabréf að nafnverði 150 milljónir króna og verður heildarstærð flokksins því í kjölfar stækkunar að nafnverði 1.000 milljónir króna.

Greiðsla og afhending bréfanna fer fram 13. apríl 2018 og óskað verður eftir því að nýju bréfin verði tekin til viðskipta á First North Iceland Fixed Income mánudaginn 16. apríl 2018.

Nánari upplýsingar veitir:

Ellert Arnarson, sjóðsstjóri SIV Fjármögnunar, ellert@gamma.is ,s. 519-3300