Ársreikningur Jeratúns ehf. 2017


Jeratún ehf.

Lykiltölur úr ársreikningum 2013 - 2017

Rekstrarreikningur2017 2016 2015 2014 2013 
Tekjur63.454 62.403 61.356 48.151 47.058 
Rekstrargjöld-7.302 -6.216 -6.884 -5.174 -5.839 
Afskriftir-4.358 -4.343 -4.325 -4.309 -4.786 
Fjármunatekjur og fjármagnsgjöld-18.837 -22.437 -25.180 -23.983 -37.315 
      
Hagnaður fyrir skatta32.957 29.407 24.967 14.685 -882 
Tekjuskattur0 0 0 0 0 
Hagnaður ársins32.957 29.407 24.967 14.685 -882 
      
Efnahagsreikningur     
Fastafjármunir425.085 428.059 428.933 433.259 435.552 
Veltufjármunir23.328 21.030 22.116 15.540 14.289 
Eignir samtals448.413 449.089 451.049 448.799 449.841 
      
Eigið fé173.542 130.585 93.178 50.211 10.527 
Langtímaskuldir og skuldbindingar222.857 265.716 305.960 343.677 385.012 
Skammtímaskuldir52.014 52.788 51.911 54.911 54.272 
Eigið fé og skuldir samtals448.413 449.089 451.049 448.799 449.811 
      
Yfirlit um sjóðstreymi     
Handbært fé frá (til) rekstri41.185 45.476 28.112 22.945 18.811 
Fjárfestingahreyfingar-1.384 -3.468 0 -2.045 0 
Fjármögnunarhreyfingar-36.902 -38.028 -27.194 -19.649 -16.577 
Handbært fé í árslok23.287 20.388 16.408 15.490 14.240 
      
Kennitölur     
Veltufjárhlutfall0,45 0,40 0,43 0,28 0,26 
Eiginfjárhlutfall38,70%29,08%20,66%11,19%2,34%

Ársreikningur Jeratúns ehf. árið 2017

Ársreikningur Jeratúns ehf. er gerður í samræmi við nýja og endurbætta staðla (IFRS/IAS) og túlkanir (IFRIC).

Ársreikningur Jeratúns ehf. fyrir árið 2017 var staðfestur af stjórn félagsins í dag, 21. mars 2018.

Jeratún ehf. er einkafyrirtæki í eigu Grundarfjarðarbæjar, Helgafellssveitar, Snæfellsbæjar og Stykkishólmsbæjar og bera þau ábyrgð á skuldbindingum þess. Hlutverk félagsins er bygging og rekstur skólahúsnæðis Fjölbrautaskóla Snæfellinga í Grundarfirði. Starfsemi félagsins flokkast því undir að vera á vettvangi sveitarfélaga.

Hagnaður félagsins á árinu 2017 var 32.957 þús. kr. og í lok þess var eigið fé jákvætt sem nemur 173.542 þús. kr. skv. ársreikningi. Stjórnin mun leggja það til við hluthafafund félagsins að hlutafé verði aukið um átta milljónir króna.

Stjórn félagsins vekur athygli á áritun óháðs endurskoðanda sem er með ábendingu.

Lántaka félagsins er vegna fjármögnunar framkvæmda við Fjölbrautaskóla Snæfellinga. Sveitarfélögin ásamt ríkinu greiða húsaleigu sem á að standa undir afborgunum og vöxtum af lánum. Í lok ársins námu eftirstöðvar lána um 270 millj. kr. og voru eftirstöðvar í skilum. Sveitarfélögin bera hlutfallslega ábyrgð á greiðslu lánanna.

Félagið er með leigusamning við Menntamálaráðuneytið og sveitarfélögin á Snæfellsnesi vegna fasteignarinnar til 31. júlí 2024. Núverandi leigugreiðslur eru 63.454 þús. kr. á ársgrundvelli og eru verðtryggðar með vísitölu neysluverðs.

Sturla Böðvarsson, er stjórnarformaður Jeratúns ehf. og veitir frekari upplýsingar um starfsemi þess og stöðu.

Ársreikningur Jeratúns ehf. 2017


Attachments

Ársreikningur Jeratúns ehf. 2017