Vopnafjarðarhreppur - Ársreikningur 2014


Ársreikningur Vopnafjarðarhrepps fyrir árið 2014 var lagður fram til fyrri umræðu í hreppsnefnd Vopnafjarðarhrepps fimmtudaginn 30. apríl 2015. Samkvæmt sveitarstjórnarlögum skal fjalla um ársreikninginn á tveimur fundum í sveitarstjórn, síðari umræða verður um ársreikninginn á hreppsnefndarfundi fimmtudaginn 7. maí nk.

Ársreikningur Vopnafjarðarhrepps árið 2014 hefur að geyma ársreikning fyrir þær rekstrareiningar sem falla undir A hluta starfsemi sveitarfélagsins og samantekinn ársreikning fyrir alla starfsemi þess, þ.e. A og B hluta, sbr. 60. gr. sveitarstjórnarlaga, nr. 138/2011.

Til A- hluta telst starfsemi sem að hluta eða öllu leyti er fjármögnuð með skatttekjum. Hér er um að ræða Aðalsjóð, en auk hans Eignasjóð og Þjónustumiðstöð. Til B- hluta teljast fjárhagslega sjálfstæð fyrirtæki sem að hálfu eða meirihluta eru í eigu sveitarfélagsins, en rekstur þessara fyrirtækja er fjármagnaður með þjónustutekjum. Fyrirtæki sem falla undir B- hluta starfsemi sveitarfélagsins eru Hafnarsjóður, Vatnsveita, Fráveita, Félagslegar íbúðir, Atvinnueflingarsjóður, Legudeildin Sundabúð, Lyfsala, Skiphólmi ehf. og Arnarvatn ehf

Helstu niðurstöður ársreiknings 2014 eru eftirfarandi:

  • Rekstrarniðurstaða A og B hluta á árinu var jákvæð um 39 millj. kr., en niðurstaða A hluta var jákvæð um 12 millj. kr.
  • Veltufé frá rekstri A og B hluta nam 106 millj. kr., en 51 millj. kr. í A hluta.
  • Skuldir og skuldbindingar A og B hluta námu 638 millj. kr. í árslok 2014, en 561 millj. kr. í A hluta.
  • Eigið fé A og B hluta nam um 762 millj. kr. í árslok en eigið fé A hluta nam um 610 millj. kr.
  • Skuldahlutfall A og B hluta, skv. skilgreiningu í reglugerð um fjárhagsleg viðmið nr. 502/2012, nemur 71,4% í árslok 2014, en þetta hlutfall var 79,5% í árslok 2013.
  • Skuldahlutfall A og B hluta, skv. skilgreiningu í reglugerð um fjárhagsleg viðmið nr. 502/2012, nemur 71,4% í árslok 2014, en þetta hlutfall var 79,5% í árslok 2013.
  • Skuldaviðmið A og B hluta, skv. sömu reglugerð, nemur 63,1% í árslok 2014, en þetta hlutfall var 67,5% í árslok 2013. Samkvæmt sveitarstjórnarlögum og ofangreindri reglugerð þá skulu þessi hlutföll ekki var hærri en 150%.
  • Þá skulu samanlögð heildarútgjöld til rekstrar vegna A og B hluta ekki vera hærri en sem nemur samanlögðum reglulegum tekjum á hverju þriggja ára tímabili. Rekstrarjöfnuður Vopnafjarðarhrepps fyrir A og B hluta hefur verið jákvæður undanfarin ár og verður jákvæður áfram gangi fyrirliggjandi áætlanir sveitarfélagsins eftir.

 

Nánari upplýsingar veitir Ólafur Áki Ragnarsson, sveitarstjóri.

 


Attachments

Ársreikningur Vopnafjarðarhrepps_30042015_signed.pdf