Landic Property selur Atlas I fasteignasafnið


Fasteignafélagið Landic Property hf. hefur skrifað undir samning um sölu á
Atlas I fasteignasafninu (Landic Property Denmark A/S) til danska
fasteignafélagsins Jeudan A/S. Fasteignasafnið samanstendur af 31 fasteign sem
flestar eru staðsettar í miðborg Kaupmannahafnar. Fasteignasafnið inniheldur
m.a. þekktar byggingar í Kaupmannahöfn eins og Tietgen húsið og ØK bygginguna.
Söluverðið er um 2 milljarðar DKK sem samsvarar bókfærðu verði fasteignanna. 

Viðar Þorkelsson, forstjóri Landic Property segir: „Ég er ánægður með þennan
samning sem við höfum gert við Jeudan og tel að verðið sé vel ásættanlegt miða
við núverandi markaðsaðstæður. Þessi samningur er mikilvægur áfangi í
endurskipulagningu Landic Property sem í framhaldinu mun einbeita sér að
rekstri fasteigna á Íslandi. Endurskipulagningin á íslenska eignasafninu gengur
vel og er því sem næst lokið.” 

Frekari upplýsingar veitir:
Viðar Þorkelsson
forstjóri Landic Property hf.
Sími 669 4444
E-mail: vth@landicproperty.com